áúáúa o-ó... svo ég haldi áfram að vitna í sívinsæl dægurlög
nema hvað, ég er strandaglópur á akureyri. tilkynnti það hátt og snjallt að ég ætlaði sko ekki að vinna laugardaginn 18. júní, og í framhaldinu var sjoppunni lokað, segiði svo að maður hafi ekki áhfrif. missti það líka út úr mér að ég ætlaði kannski hugsanlega ef til vill norður og med det samme var búið að munstra á mig bíl og svo myndi það bara ráðast hvort ég fengi bíl til baka eða færi með flugi...
en, en, en...?
það er sunnudagur, ég enn á akureyri, og rigningin lemur húsin. bláa kannan er full af ferðalöngum og þýzka er mál dagsins. inn á milli má samt greina stöku orð á íslensku, dönsku og frönsku. grænmetisbaka, salat og kók, nammi
úti í rigningunni skjótast enn fleiri túristar milli húsa, vopnaðir myndavélum og í tívolístígvélum láta þeir flössin dynja á okkur sem inni sitjum
það er 19. júní og heill herskari 2000 kvenna skundar á þingvöll með bleika von í hjarta og huga, og strengir heit. einhvern veginn dettur mér í hug að það sé ekki til mikils, hefði haldið að ef þessar baráttukonur (þó ég viti ekki alveg hverju þær eru að berjast fyrir nema kannski jafnari launum) vildu ná sínu fram væri nær fyrir þær að skunda eitthvert þar sem karlmenn eru fyrir, amk ef þær vilja að þeir hlusti. en auðvitað er voða gaman að fara í sunnudagsbíltúr og njóta náttúrunnar...
ég gerði það líka, fór í bíltúr og naut náttúrunnar, laugardagsbíltúr reyndar en kemur nokkurn vegin á sama stað niður. þó ég fengi ekki bíl til baka fékk ég bíl fram og til baka á akureyri, skárra en ekkert. fyrsti bíllinn sem ég átti að fá var að vísu óskoðaður frá því í janúar, næsti bíll sem ég vildi fá var enn á nagladekkjum, þriðji bíllinn var gamall bensínlaus subaru og á loftlausum dekkjum. ég keyra voða varlega út á bensínstöð, pumpa í dekk og dæli á tank. svo þegar ég keyri aðeins minna varlega kemur í ljós að hann er líka bremsulaus, amk að aftan, held líka hægra megin að framan. skila, fá annan...
bíltúrinn entist allan daginn, akureyri-mývatn-akureyri. burraði eins og ég gat upp á námafjall, sem er bara nokkuð langt, og labbaði svo restina, sem er bara nokkuð bratt... myndaði í bak og fyrir og allt um kring, fékk hálsbólgu fyrir, takk. myndaði líka leirhverina við fjallið. myndaði líka stóra og stórskrýtna húsið inn við kröfluvirkjun í bak og fyrir og allt um kring. var á nálum allan tímann af ótta við að vörðurinn kæmi út og skammaði mig og hirti af mér myndavélina, en hann hefur sennilegast bara ekki séð mig. ef hann hefur séð mig þá hefur hann örugglega haldið að ég væri klikk og ekki þorað út að skamma mig. ef þú hefðir séð mig, standa tvo metra frá húsi sem er tvöhundruð sinnum tuttugu metrar, með myndavél fyrir auganu, beinandi henni upp og niður og helst alltaf á ská, þá héldir þú líka að ég væri klikk...
eftir heimspekilegar pælingar um lífið og tilveruna, og eftir að hafa tekið loforð af sjálfum mér um að koma fljótt aftur, og í þetta sinn labba upp á kerfjall, brunaði ég aftur inn á akureyri, langaði í bíó. ákvað líka að kíkja á næturlífið á akureyri þrátt fyrir fréttir af fjöldaslagsmálum um nóttina, ákvað líka að fara í sturtu áður en ég færi í bíó. renndi í hlað við hoephfnershús, stökk inn, dró fyrir gluggana og skrúfaði frá vatninu. var rétt búinn að setja sápuna í hárið þegar ég heyrði hávaða frammmi úr íbúð. gat í fljótu bragði ekki munað eftir neinum eðlilegum örsökum hávaðans, hmm skrítið... skolaði sápuna úr hárinu, augunum og andlitinu, lít fram, gegnum glært sturtuhengið, gegnum opnar baðherbergisdyrnar og gegnum stóra stóra gluggann og út á götu hvar gamall og ljótur hvítur mitsubishi ók löturhægt fram hjá... held amk að þetta hafi verið mitsubishi. hugsaði aftur hmm skrítið, var vissum að það var gardína fyrir þessum glugga rétt áðan, og var líka viss um að ég hafði dregið hana fyrir... með leifturhraða og öryggi ölvaðs snigils rann upp fyrir mér ógnarbjart ljós, hávaðinn sem ég heyrði áðan var gardínan að detta í gólfið...
að stripptísinu loknu dreif ég mig í gallann og í bíó, fór á powersýningu batman begins (þar sem ég hafði ekki val um annað) í sambíóinu á akureyri hvar er stranglega bannað að fara inn með gos og sælgæti annað en það sem selt er í bíóinu sjálfu. þetta er tekið skýrt fram í hléi. sem er allt í lagi því þá var ég búinn með kókið og nammið sem ég keypti í sjoppunni við hliðina á bíóinu...
nema hvað, ég sit í bíóinu, aleinn með allar gelgjur bæjarins umhverfis mig og stimplaður sódó af þeim hinum sömu. myndin byrjar. og myndin byrjar. og myndin byrjar... batman begins er réttnefni því myndin er um það bil einn og hálfan tíma að byrja - hvað er þetta með mig og lélegar bíómyndir nýlega?
bíóið búið, og ég líka, ákveð samt að fara á kaffi karólinu og fá mér bjór... komst að því eftir skamma stund (ca hálfan bjór) að það sem er verra við að fara einn á pöbbinn á akureyri en í reykjavík er það að á akureyri þekkja allir alla, nema ég, ég þekki engan. í reykjavík er amk stærfræðilegur möguleiki á því að hitta einhvern sem ég þekki. í hið minnsta get ég hringt í einhvern sem ég þekki, spurt hvar viðkomindi sé og sagt; ok, ég kem eftir fimm...
labbaði um bæinn sem er álíka stór og bergmálið í hausnum á sjálfum mér, fór heim, svaf