miðvikudagur, febrúar 21, 2007

hrmpf

og ég sem var alveg ákveðinn í því að fara í víking og finna sólina. ó nei! því verður víst ekki við komið. (hins vegar má geta þess í framhjáhlaupi að framkvæmdastjóri fyrirtækisins sem ég vinn hjá hefur eytt síðust tveim vikum í "gönguferð með tilgangi" eins og hann kallar það, á flórída.) ég, sveppurinn, sit hins vegar heima í myrkrinu.

ég þarf að læra að fljúga. nei, ekki flugvél heldur meira svona eins og kallinn í heroes, eða eins og hiro, japaninn í heroes, hann flýgur ekki, stjórnar bara tíma og rúmi. sem eins og fram hefur komið getur verið sérlega þægilegt, stundum.

við erum nokkrir í vinnunni sem ákváðum að kanna möguleikann á því að rotta okkur saman og fara á silverstone í júlí. jú jú, ekkert mál, verðmiðinn eru litlar kr. 170.000,- já, mér svelgdist líka á munnvatninu þegar ég heyrði þetta. hundraðogsjötjukall fyrir skitnar fimm nætur?!?! og það er ekki einu sinni sól á englandi! jú jú, voða gaman að fara á formúlunna en þetta er of dýrt fyrir mig, amk þetta árið.

nei, engin sólarlandaferð fyrir mig þennan veturinn. frekar en alla hina veturna. hingað til amk, vonandi næsta vetur. á meðan bíð ég eftir íslenzku sumri, sem aldrei kemur.

2 Comments:

Blogger Unknown said...

drama drama drama ;o)

þú skellir þér barasta til útlanda seinna ... eða hangir allavegana í þeirri von. Og það er alveg að koma sumar hérna á skerinu (ef sumar skyldi kalla) so smile! :o)

07 maí, 2007 14:59  
Blogger Unknown said...

Jæja drengur, hvernig væri nú að fara að blogga eitthvað aftur?! Alveg hrikalega langt síðan síðast sko ;o)

knús

02 ágúst, 2007 17:13  

Skrifa ummæli

<< Home