laugardagur, júní 25, 2005

hmmm...

það er svo margt intressant, svo margt forvitnilegt, í þessu lífi okkar...

tökum til dæmis sýningu matthew barney og gabríelu friðriksdóttur í listasafni akureyrar, hún er mjög intressant svo ekki sé sterkara að orði kveðið... nú ef ég læt það eftir mér að viðra skoðanir mínar á matthew barney (því altari meðalmennskunnar er nú einu sinni mitt ríki þar sem ég drottna eins og... já, nóg um það) þá verð ég nú bara að segja það að matthew barney er klikk!

af hverju? jú af því einfaldlega að maður þarf að vera nett klikk til að láta sér detta þá hluti í hug sem áður og títtnefndur matthew barney lætur sér detta í hug (og svo er hann líka með björk "okkar" of course...)

hvað er það sem gerir hann klikk? ég veit það ekki, eitthvað dramatískt í æsku geri ég ráð fyrir, held það hljóti bara að vera, miðað við hvað hann hlýtur eiginlega að vera skemmdur...

af hverju er ég að halda því fram að matthew barney sé klikk? það er laugardagur, ég er búinn í vinnunni, hef lítið betra að gera, og ég er enn að hugsa um sýninguna hoist sem ég sá sl. sunnudag á listasafninu á akureyri! sjá; www.listasafn.akureyri.is

og ég gríp niður í hluta lýsingar: "De Lama Lâmina er að hluta til heimildarmynd sem gerð var þegar Barney og Lindsay tróðu upp á kjötkveðjuhátíðinni í Salvador, höfuðborg Bahia-fylkis í Brasilíu, með býsna skrautlega þungavinnuvél. Meginhluti vagnsins var gerður úr gríðarstórri vél eins og þeim sem eru notaðar í stórvirku skógarhöggi í regnskógum Suður-Ameríku. Í klóm vélarinnar var stórt tré og í því persónugervingur umhverfissinnans Julia Butterfly Hill sem var orðin samvaxin trénu. Goðsagnarverurnar Ossain og Ogun koma einnig við sögu, þeir eru andstæður sem takast á, annar er stríðsguð en hinn skógarvættur.

Við hjól skógvinnsluvélarinnar voru bundnir hakar, skóflur og önnur handverkfæri sem glömruðu í takt við aksturinn. Undir vélinni hékk síðan Greenman sem er aðalsöguhetjan í myndbandinu Hoist. Greenman er blanda af manni og plöntu, hann er með lauka sem blómstra hægt og sígandi í munni og endaþarmi og lýsir myndbandið á mjög opinskáan hátt hvernig honum rís hold og síðan samræði hans við drifskaft skógvinnsluvélarinnar.
"

svo mörg voru þau orð, tjah, reyndar eru þau miklu fleiri, en að láta sér detta í hug að sýna holdlegt samræði manns og skógarvinnsluvélar, eins absúrd og það hljómar, þarf auðvitað ákveðna brenglun til

og þó, hvað veit ég svo sem... en matthew barney til kredits má segja að tilganginum með verkinu sé kannski náð, amk er ég enn að hugsa um það...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home