fimmtudagur, maí 18, 2006

einu sinni

á margra ára fresti gerist það að þú "uppgvötar" eitthvað sem þú vissir ekki um áður. þessi uppgvötun eða fundur getur verið í hvaða formi sem er, það má vera að þú rekist á mynd af sjálfum þér frá því þú varst þriggja ára og vissir ekki að væri til. stundum er þetta eilítið ópersónulegra. í mínu tilfelli gerist þetta mjög óreglulega en á það þó sameiginlegt að vera nær undantekningarlaust tengt tónlist, bókum eða kvikmyndum.

mín fyrsta uppgvötun (og af hverju er ekki til íslenskt kjarnyrt gamalt orð yfir serendipity?) tengist einmitt tónlist. ég var tólf ára, nýkominn heim frá ítalíu með foreldrum vorum og litlu systur. stóri bróðir hafði af undarlegum ástæðum ákveðið að vera heima og auðvitað nýtt tækifærið og haldið partí. vinur hans kom með hluta af plötusafninu sínu og þar bar hæst safnplötu frá david nokkrum bowie (borið fram bóví, ekki báví þó bubbi segi það...) mörgum mörgum árum síðar var það tom waits, enn síðar bob dylan. ok, segja má að ég hafi vitað af waits og dylan en tónlistarsmekkurinn enn óþroskaður og þessir listamenn því legið í nokkurs konar dvala í minni tónlistarlegu vitund. einhversstaðar þarna inn á milli voru radiohead, blur (sem reyndar komst ekki almennilega á blað fyrr en með think tank) pavement, sigurrós, eels, damien rice, adam masterson, mugison, moby, slow blow ofl. (in non chronological order)

nema hvað, tilgangurinn með þessum annars langa inngangi er að segja frá nýasta fundinum sem er stúlknadúettinn cocorosie. frá og með fyrsta laginu þeirra sem ég heyrði, jesus loves me var ég húkkaður, svo notað sé gott íslenskt kjarnyrt sjómannamál. svo mjög að aðeins örfáum dögum síðar sannfærði ég sjálfan mig að ég hreinlega yrði skilyrðislaust að fara á tónleikana þeirra á nasa núna í kvöld þrátt fyrir ofurhátt miðaverð. kvöldið byrjaði samt ekki vel, var einfaldlega í akkúrat engu stuði og þar að auki með netta magakveisu sem dró mig í bælið og undir sæng. dottaði þar í hálftíma, vaknaði svo endurnærður og hress. skellti mér því á tónleikana, var að vísu aðeins seinn, missti af þrem fyrstu lögunum og á eftir að bölva sjálfum mér vel og lengi fyrir helvítis aumingjaskapinn.

systraparið, coco og rosie ásamt sérlegum frönskum aðstoðarmanni sínum (sem ég veit ekki hvað heitir en veit þó að hann gefur mc solar ekkert eftir, datt reyndar í hug eitt augnablik að þetta væri hann en útilokaði það jafnharðan aftur sökum aldurs viðkomandi) fluttu lögin sín af fagmennsku og yfirvegun með dash af unggæðingslegum og mjög svo viðeigandi leikaraskap. tónlist tríódúettsins er of flókin til að útskýra í stuttu máli en eina mesta athygli hefur vakið notkun þeirra á fjölbreyttu úrvali barnaleikfanga við tónsmíðarnar og kemur það á óvart hversu fögur hljóð þær systur ná að galdra fram úr sömu þroskaleikföngunum og þriggja ára krakki nær að nota til að gera hvern sem er í þrjátíu metra radíus snarvitlausan og jafnvel bilaðan á geði...! þar fyrir utan er raddsvið rosie með ólíkindum en hún getur allt eins verið útlærð og burtskrifuð messósópran miðað við þá færni sem hún sýndi á sviðinu á nasa í kvöld.

tónleikarnir voru sem sagt stórkostlega vel heppnaðir og skipti þá afar litlu máli að fæstir viðstaddra þekktu tónlistina sem flutt var fyrir þá. miðað við vinyl og cd sölu að tónleikunum loknum má fastlega gera ráð fyrir að það breytist fljótlega. við hin sem amk aðeins könnumst við cocorosie gengum út í bjarta nóttina mett eyrnakonfekti sem og sjónrænum veisluföngum systranna fögru og getum ekki beðið þess að þær komi aftur. viðurkenni það fúslega að ég vona helst að þeim líki jafn vel við landið og landann og damien rice og verði því fastagestir á sviðinu á nasa.

Ó-feigur...?


Lítill en hávær, svartur og haugdrulluskítugur fresskettlingur, svona ca 3 - 3 1/2 mánaðar gamall fannst ofan á ylvolgri vél í Musso jeppa við Bílabúð Benna að Tangarhöfða 8-12 um miðjan dag í gær, 16. maí. Var ekki á því að láta ná sér en lét, sökum ungæðingsháttar, gabbast að lokum. Var kaldur, hrakinn, styggur og svangur en eftir góða kvöldmáltíð og enn betra bað kom í ljós að hann er hin mesta kelirófa sem heimtar sitt klapp, klór og kelerí refjalaust.

Hefur, amk tímabundið, verið valið gælunafnið Ófeigur og dvelur nú við gott atlæti í umsjá Zophusar nokkurs. Undir handleiðslu sér eldri og vitrari séntilmanns standa vonir til að Ófeigur braggist hið bráðasta meðan hann bíður þess að komast heim til sín.

Þess má geta að Ófeigur er ólarlaus og hvorki eyrna- né örmerktur, amk svo vitað sé. Fljótt á giskað, miðað við líkamlegt og andlegt ásigkomulag Ófeigs, hefur hann verið á vergangi í amk vikutíma og langar nú heim til sín aftur.