þriðjudagur, ágúst 23, 2005

ég hugsa...

þess vegna er ég, svo sagði decartes amk. og jafnvel þó sú fullyrðing, amk á íslensku, sé ekki málfræðilega rétt, enda skipti það decartes engu máli, efast meira að segja um að hann hafi vitað af íslensku, og jafnvel íslandi, en það er önnur saga...

og ég hugsa líka, og meira segja með hægra heilahveli sem, þó það sé nú kannski ekkert rosalegt stórhveli, enginn moby dick, er það samt sem áður stórmerkilegt... eníveis; these are the results of the tickle jury: (ok, þetta er test en ekki dómnefnd, whatever mar...)

Most right-brained people like you are flexible in many realms of their lives. Whether picking up on the nuances of musical concerto, appreciating the subtle details in a work of art, or seeing the world from a different perspective, right-brained people are creative, imaginative, and attuned to their surroundings.

People probably see your thinking process as boundless, and that might translate to your physical surroundings as well. Some people think of you as messier than others. It's not that you're disorganized, it's just that you might use different systems to organize (by theme, by subject, by color). Straight alphabetization and rigidly ordered folders are not typical of right-brained behavior. You are also more intuitive than many. When it comes to reading literature, you probably prefer creative writing or fiction over nonfiction. And when it comes to doing math, you might find you enjoy geometry more than other forms like algebra.

svo mörg voru þau orð og ég hef aðeins einu við það að bæta, not disorganized? yeah, right!!!

sunnudagur, ágúst 21, 2005

í dag er þetta...

ekki helst í fréttum; í gær var menningarnótt - þetta í sjálfu sér eru auðvitað öfugmæli, já eða réttara sagt, menningarnótt er öfugmæli. allt húllumhæið byrjar fyrir hádegi með skemmtiskokki í hljómskálagarðinum og endar með frækilegri flugeldasýningu, niðurtaldri (já eða jafnvel íniðurtaldri) af ölvuðum borgarstjóra, sem tapaði taktinum á miðri leið þrátt fyrir dyggilega aðstoð húðlemjara og blikkandi grilljón kerta kastara, löngu fyrir miðnætti þess sama dags...

skátarnir, með flugeldasýningu sinni með tilheyrandi fírverki sprengdu göt á skýin sem höfðu vakað yfir menningarnóttinni allan daginn og fram á kvöld. því fór sem fór og göturnar sem fyrr um daginn breyttust í göngustíga umhverfðust nú í lækjarfarvegi og gegnblautir reykvíkingar og nærsveitamenn flykktust heim til sín lögregluyfirvöldum til mikils léttis. kannski ekki hinum réttasta og sléttasta lögregluþjóni sem regnblautur stjórnaði umferð með myndarbrag í úrhellinu en það var kannski þó skárra en að þurfa hafa afskipti af sauðdrukknum pöpulnum langt fram eftir morgni...

það sem stóð hæðst upp úr allri flórunni er í boði var, að mínu mati þeas og í réttri tímaröð, voru; síðustu tónar fyrsta lags af enn óútkominni annari plötu benna hemm hemm. náði í skottið á honum í hljómskálagarði sirkuss og líkaði vel. tölti þaðan niðrí landsbankann við austurstræti og barði augum, meða annars, allt of stutt brot íslenska dansflokksins úr verkinu screensaver, og enn styttra brot úr verkinu við erum öll marlene dietrich for. ákvað þar og þá, og ekki í fyrsta sinn, að ég hreinlega bara verði að sjá fleiri verk id. bara spurning, sem svo oft áður, hvern ég get platað með mér á sýningar hans því að fara einn í bíó er nógu slæmt, að fara einn í leikhús eða á danssýningar er enn verra, það er bara svo anti social eitthvað... matarkyns stóð tagliolina með humarhölum vegamóta upp úr. innbyrti reyndar ekkert ofsalega fjölbreytt fæði þetta kvöld en það hefði samt engu breytt.

allt að því jafn blautur og kjöldreginn shanghaiaður messagutti á frönskum hákarlaveiðibát um eða fyrir þarsíðustu aldamót settist ég ásamt fríðu föruneyti inn á ölkrána, heilsu minnar vegna og til að ná úr mér mesta hrollnum hesthúsaði ég einu skoti af glærum drykk sem minnti helst á lakkrís og norska brjóstdropa, skolaði honum síðan niður með næstum náravolgum heineken þar sem ískaldur becks var ekki til... tók svo stuttu síðar þá skynsamlegu ákvörðun að hunskast bara heim til mín og pota mér ofan í rúm og undir sæng.

liggjandi í rúminu ölvaður menningunni sem ég hafði osmosisað þennan dag ákvað ég að læra á hljóðfæri - valið stendur milli trompets, saxófóns eða píanós... það versta er að þetta eru allt rándýr hljóðfæri og það síðasttalda þónokkuð fyrirferðarmikið, þungt og óþjált í meðförum. jú jú, auðvitað er hægt að finna ódýran trompet á ebay en einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni að það sé nú bara hálgert drasl, í mesta lagi lélegt prjál. verð líka að viðurkenna að hugmyndin um að ég sé sjálfur hluti af hljóðfærinu er ekki alveg að höfða til mín, svo hefur mig líka alltaf langað til að læra á píanó þannig að ég held það verði fyrir valinu, bara spurning um hvenær ég nái að hella mér út í námið... ætli ég þurfi ekki fyrst að verða mér út um sjálft píanóið og hér með er því komið á framfæri ósk eftir hræbillegri en samt sem áður vandaðri og tónfagurri slaghörpu fyrir mig til að misþyrma...

sunnudagur, ágúst 14, 2005

sunnudagar...

hrmpf... einhvernveginn finnst mér að sunnudagar ættu að vera frábærustu dagar í heimi! en eru þeir það? ónei, ekki aldeilis...

af hverju? það er stóra spurningin... jú kannski af því að þeir fara yfirleitt allir í einhverja tóma vitleysu, amk hjá mér, kannski af því að ég nenni yfirleitt ekki að gera neitt á laugardögum og það sem ég þarf að gera á laugardögum enda ég með að gera á sunnudögum...

ég meina, nennir þú að taka til, ryksjúga og þurrka af, þvo upp það sem þú hefur trassað að þvo upp, setja í þvottavélina svo þú eigir hrein föt næstu vinnuviku, og allt? á laugardegi? nei, ekki ég heldur! en gerir þú það? já ok, ekki ég... ég yfirleitt dreg það fram á sunnudag, og af því ég nenni því ekki á sunnudögum heldur þá dreg ég það yfirleitt fram á sunnudagskvöld og kemst aðeins yfir það nauðsynlegasta...

og helgin ónýt, búin og heil vika í þá næstu...

begin loop
repeat...
end loop?

laugardagur, ágúst 13, 2005

there is no karma police...

ég meina, í alvöru, pæld'íðí... að trúa á karma er eins og að trúa á jesú, ef þú ert góð/ur og gerir góða hluti þá gerast góðir hlutir allt í kringum þig og þú líf þitt er ógeðslega jolly og happy eitthvað... hins vegar ef þú gerir slæma hluti þá koma slæmir hlutir fyrir þig og lífið verður skítt...

eins ef þú trúir á jesú, tala nú ekki um ef þú hefur, eins og snillingarnir segja, lifandi trú á jesú, þá hagar þú þér vel og gerir allt eins og jesú myndi gera og þú kemst til himna og lífið, eftir dauðann, verður hrein og tær sæla, hins vegar ef þú lætur djöfulinn glepja þig þá ertu dæmd/ur til eilífðarvistar í helvíti og það ku víst ekki tekið út með sældinni einni saman...

það skrítnasta við þetta allt saman er svo súper frelsaða fólkið sem segir okkur hinum og trúa á jesú og pabba hans og englana vini hans osfrv... það segir okkur að elska náungann eins og sjálf okkur, sem er náttla bara hið besta mál, og ekki ágirnast hið veraldlega heldur vera einlæg í trúnni og allt, peningar eru verkfæri satans og við séum betur komin án þeirra og því skulum við gefa þá, og helst söfnuðnum auðvitað, styrkja hann og svona... svo þegar betur er að gáð þá er þetta að jafnaði fordómafyllsta, dómharðasta og eigingjarnasta fólk sem fyrirfinnst á jarðríki...

finnst bara mér þetta creepy?

það góða...

við að fara vansvefta og dauðþreyttur í bæinn/partý/á djammið osfrv. (for those of you who are so inclinded) er að eftir aðeins tvo bjóra ertu verulega farin/n að finna á þér... það slæma, hins vegar, við að fara vansvefta og dauðþreyttur í bæinn/partý/á djammið osfrv. (for those of you who are not so inclinded) er að eftir aðeins tvo bjóra ertu verulega farin/n að finna á þér...

lausn? jú, annað hvort sofa meira virka daga (já eða kannski nætur öllu heldur) og þá gengur örugglega líka betur í vinnunni, eða drekka bara einn bjór...

theorían er amk einföld, ekki víst að framkvæmdin sé jafn auðveld... amk hef ég það fyrir venju að segja sjálfum mér á næstum hverjum degi að í kvöld fari ég sko snemma að sofa, ekki svo að skilja að ég fari nokkurn tíma eftir því. þetta er svipað og að kaupa kort í hreyfingu, ekki svo að skilja að ég noti það einhvern tíma...

nei, þá hjóla ég frekar, á líka þetta fína fjallahjól sem ég keypti í gáp á sínum tíma, og nánast alveg ónotað, ekki svo að skilja að ég noti það einhvern tíma...

starting to notice a pattern...?

mánudagur, ágúst 01, 2005

í dag hljóma

ég eins og alvöru karlmaður, jú í dag hljóma ég eins og james spader eða william shatner í boston legal, drafandi, dramatískur og karlmannlegur... já í dag, reyndar eins og í gær og fyrradag líka, er ég með hálsbólgu, kvef og kverkaskít - og alveg ógurlega, gríðarlega, yfirþyrmandi sexý...