þriðjudagur, júní 28, 2005

i see dead... uhm, eitthvað...

allt í einu mundi ég það, það sem ég var að kvarta um áðan að ég mundi ekki, froðuheilinn leynir á sér, yeehaa... (hóst)

sko, einu sinni, þegar ég var staddur aleinn inni í myrkraklefa á annarri hæð ljósmyndaversins í skólanum mínum úti í sf, hélt ég að ég hefði séð hann afa minn, afa minn sem dó fyrir mörgum mörgum árum...

sennilega var þetta bara endurspeglun af linsunni í stækkaranum, ljósbrot af úrinu mínu, seinkuð viðbrögð við glampa á sjónhimnunni í auganu í sjálfum mér, eða, og það sem líklegast er, sjóntruflanir vegna mígrenis sem var rétt um það bil að búa um sig í hausnum á mér enda var þetta um miðja nótt og ég búinn að standa í lappirnar allt of lengi og orðinn nett þreyttur eftir að hafa grúft mig yfir stækkarann og framkallarann og stoppið og fixið alla nóttina...

en svo skrýtið sem það kann að vera þá sá ég eitthvað út undan mér, a ripple in the fabric of reality... og það fyrsta sem mér datt í hug, og sagði upphátt, var: afi?

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

btw, ef hef ekki sagt það fyrr ... þinn skrítinn ;o)

En það er örugglega ættgengur andskoti, minns nefnilega skrítinn líka. Fannst ég sjá afa einu sinni fyrir mörgum mörgum árum síðan þegar var enn í menntó. Jebb, mj langt síðan. Nema hvað það var Gísli afi, ekki Brandur...

05 júlí, 2005 16:46  
Blogger birkir said...

en þú hefur aldrei hitt gíslafa...?

05 júlí, 2005 23:54  
Blogger birkir said...

en þú hefur aldrei hitt gíslafa...?

05 júlí, 2005 23:54  
Anonymous Nafnlaus said...

I know, fann bara að þetta var hann. Fór svo heim og spurði pabba ýmissa spurninga um Gísla afa og lýsti svo manninum sem mér fannst ég sjá. Og það passaði fullkomlega, pabba fannst þetta MJÖG spes. :oS

Ég veit ekki einusinni til þess að ég hafi séð mynd af honum, hvað þá með þennan hatt sem hann var með og pabbi kannaðist við. Jamms, alveg spooky ;o)

06 júlí, 2005 16:31  
Blogger birkir said...

imagine if you will...

06 júlí, 2005 18:57  
Anonymous Nafnlaus said...

hehehe ;o)

07 júlí, 2005 10:57  

Skrifa ummæli

<< Home