fimmtudagur, júní 09, 2005

slæm hugmynd

já eða bara slæm mynd...

það er einu sinni svo með okkur mannfólkið að við fáum á hverjum degi milljón hugmyndir og allar misgóðar. okkur er hins vegar, með meðfæddum gáfum og góðu uppeldi, gefin sú náðargáfa að greina þær slæmu frá þeim góðu, nýtar frá ónýtum, hismið frá kjarnanum, osfrv.

en stundum, og sem betur fer bara stundum, klikkum við á greiningunni og höldum háleit og bjarteyg af stað með vita ónýtar hugmyndir sem við framkvæmum og gerum að veruleika aðeins til að sjá eftir þeim, eða amk þeim tíma og fjármunum sem við vörðum í framkvæmdirnar.

akkúrat þetta gerðist hjá mér kvöld. ég fékk hugmynd, hafði samband við tvo bestu vini mína og sagði þeim frá henni. svekkelsið verður svo enn meira (eftir á að hyggja að sjálfsögðu) við það að þeir, þessir vinir mínir, höfðu næg tækifæri til að meta hugmyndina, kosti hennar og galla (ok, í þessu tilviki aðallega galla) og benda mér á að kannski væri hún ekki svo góð, eiginlega væri hún bara slæm, og þar með forða okkur öllum frá þeirri kvöl og pínu sem við allir þrír upplifðum í kvöld. en nei, ekki aldeilis, ekki mínir vinir...

lærðu af mistökum annarra, gerðu mér, þér og vinum þínum greiða; ef þú lætur þér detta í hug, eða ef einhver sem þú þekkir lætur sér detta í hug að fara og sjá star wars, episode iii, the revenge of the sith, hættu þá við! það er bara vond (hug)mynd

3 Comments:

Blogger anitahaf said...

heh... takk f. advorunina.. ekki ad henna thyrfti vid... eg nebbla svo klar ad pikka sigtid ur hisminu... eda ofugt... eda eitthvad allt annad... eda ekki...hmm... man ekki.... solstingur................... ai...

10 júní, 2005 17:57  
Blogger birkir said...

það er sko líka alveg sól á íslandi addna, og hún meira að segja stingur mann ekkert, nema kannski aðeins í augun þegar maður er að fara í bæinn um miðnætti...

12 júní, 2005 14:26  
Anonymous Nafnlaus said...

Ok, það hefðu allir heilvita menn átt að kæfa þessa hugmynd ykkar félaganna í fæðingu ... hvað var í gangi hjá fattaranum ykkar eiginlega??? Sorglegt, já bara sorglegt. ;)

Gvey gvey þinns ... og þeirra

Knús,
BK

15 júní, 2005 17:35  

Skrifa ummæli

<< Home