þriðjudagur, maí 31, 2005

dresden í stofunni heima

þetta er eins og eftir loftárás hérna!!! - þetta var mamma vön að kalla upp fyrir sig, og í áttina að mér, þegar henni, iðulega oft á dag, ofbauð draslið í herberginu mínu í den tid...

velti því stundum fyrir mér hvaða kynni móðir mín, sem jú að vísu er fædd rétt fyrir innrásin í normandí, hafi haft af loftárásum. hún tók örugglega ekki þátt í spænsku borgarastyrjöldinni, enda ekki fædd þá og lítið um loftárásir... wwii bauð uppá heilan helling og mikið meira en það af loftárásum, en aftur er mamma of ung. svo leyfi ég mér að stórefast að móðir mín elskuleg hafi, sem betur fer, persónulega kynnst þeim ósköpum sem gengu á í kóreustríðinu eða víetnam af þeirri sáraeinföldu og jafnframt ófrávíkjanlegu staðreynd að ísland er barasta ekki í asíu...

falklandseyjastríðið, aftur, vitlausu megin á hnettinum og, aftur, lítið um loftárásir. loks þegar loftárásir urðu vinsælt sjónvarpsefni á vesturlöndum sem og annarsstaðar í heiminum í boði cnn var ég orðinn of gamall til að mamma héldi að svona motherly induced guilt trip virkaði á mig, hún einfaldlega vissi betur eftir margra ára árangurslausar tilraunir...

sá the pianist löngu eftir að hún kom út á video, og svo aftur í sjónvarpinu um daginn. eitt síðasta atriðið í þeirri mynd sýnir gettóið í varsjá, hvar varla stendur steinn yfir steini eftir óteljandi sprengjuárásir - var, eftir að myndinni lauk, litið um í stofunni heima hjá mér og náði loks að tengja, þetta er eins og eftir loftárás hérna...!!!

hefst þá vortiltektin ógurlega... bið samt um einn greiða fyrst - ef ekkert heyrist frá mér næstu tvær vikur, hringdu þá fyrir mig í rauða krossinn og biddu um rústabjörgunarsveit...

mánudagur, maí 30, 2005

af hverju...

gerist það að þegar þú heldur að þú hefur fundið eitthvað (í mjög svo víðum skilningi), týnir þú því strax aftur...?

til dæmis; núna um daginn var ég búinn að finna nýa bílinn minn (ok, hann var kannski gamall, en nýr fyrir mér) og ákvað að kaupa hann, þá var hann seldur, bara bókstaflega úr höndunum á mér (þetta er reyndar sönn (og ekkert svo sérstaklega sniðug) framhaldssaga hjá mér í vinnunni minni, ég má ekki sjá bíl sem mér líst á, þá er einvher annar búinn að kaupa hann, hrmpf!)

en hvað um það, það kemur alltaf einhver annar bíll, þessi var bara svo góður sko...

en það er ekki alltaf þannig að um leið og þú sérð eitthvað sem þú hefur áhuga á eða þig langar í, að einhver annar er búinn að klófesta það, stundum hefur þetta eitthvað sjálfstæðan vilja og ræður þá för, stundum kemur vindhviða (eða eitthvað, common ég er að reyna að vera skáldlegur hérna, gengur sko ekkert allt of vel) og feykir því í burtu... (barbara cartland hvað, ha?)

er... uhm... hvar var ég...?

já, sko og stundum kemur það fyrir að þú heyrir lagið sem hefur verið á indefinite repeat í hausnum á þér og um leið og þú hækkar í græjunum koma auglýsingar...

svo gerist það að þú, fyrir algera tilviljun, rekst á bíómyndina sem þig hefur langað að sjá í öll þessi ár, úti á videóleigu og afgreiðslustelpan, þessi með attitjúdið, segir þér að því miður þá finni hún bara ekki myndina sem passi við hulstrið, eða það sem verra er, hún finnur myndina, þú kaupir popp og kók líka trítlar svo heim til þín, snertir ekki jörðina af hamingju, poppar, skellir klaka í glasið, myndinni í tækið og býrð þig undir dýrðina, bara til þess að farast úr svekkelsi því að myndin er svo gömul og mikið notuð að það er ekki nokkur leið að horfa á hana...

og stundum...

mánudagur, maí 02, 2005

nýju bestu vinirnir mínir:

http://www.lowmorale.co.uk/creep

og

http://www.lowmorale.co.uk

og

http://www.monkeehub.com

another day older and deeper in debt!

svo vitnað sé í gamlan verkamannaslagara frá amriku.

kom heim í kvöld og mín beið bréf frá ástkærum vinnuveitandanum. af hverju svona ástkær? jú, þetta var launaseðillinn minn. btw, af hverju er þetta mánaðarlega uppgjör/yfirlit launa kallað launaseðill, en þetta árlega kallað launamiði? einhvern veginn hefði ég haldið að per anno hefði meira vægi, og því kallað seðill, en þetta mánaðarlega, og því væri lógískara að kalla það launamiða.

með þessa röksemdafærslu til hliðsjónar mætti kalla blaðsnepilinn sem þú færð í hendur þegar þú kaupir tíu raðir í lottóinu lottómiða, en þegar þú kaupir tíu raðir í víkingalottóinu væri þér þá afhentur lottóseðill. amk ef stærð vinningspottsins er höfð til viðmiðunar. en, nota bene, rökhyggja er kannski ekkert svo ofsalega stór þáttur í lífi hins almenna lottómiðakaupanda, amk ekki ef hinn sami gerir sér vonir um vinning en kaupir ekki miða eingöngu með því hugarfari að styrkja gott málefni...

en ég er kannski bara klikk!

en hvað um það, það er alltaf voða gaman að fá launamiða... eh, launaseðil í pósti. fá staðfestingu, svart á hvítu, hvað ég er nú aldeilis búinn að vera duglegur þennan mánuðinn. svekkelsið ríður svo í hlað með þjósti og stóru fylgdarliði í formi reikningaflóru og ég fatta allt í einu hvernig bipolar fólki líður rétt eftir að það hefur náð topnum á maníunni, að vísu í smækkaðri vasabrotsbókarútgáfu en samt ískyggilega raunverulegt...

verst eru helvítis kretitkortafyrirtækin, visa frændi... já frændur eru frændum verstir! ég er alveg handviss um það að þessir vondu vondu menn sem störtuðu þessum kretitkortafyrirtækjum á sínum tíma, allir þessir kallar hjá visa, eurocard, mastercard, diners club, american express, discover, osfrv. hafi á sínum yngri árum eytt langflestum matartímunum í skólanum í það að hirða nestispeningana af samnemendum sínum. ég meina, þetta er akkúrat sama mentalítetið! þeir sem eyddu svo líka mestum tíma kennslustundanna við sömu iðju, eða þá úti í sjoppu, gerðust svo handrukkarar fyrir hinar ýmsustu mafíur, meðan þessir kláru hugsuðu upp leiðir til að gera uppáhaldsiðju sína að löglegri (og auðvitað framúrskarandi ábótasamri) starfsemi.

við hin erum enn þá að láta þá stela af okkur nestispeningunum okkar...

me be so klever...

eftir að hafa hugsað klukkunni, eða að minnsta kosti formati klukkunar (æji þú veist, draslið þarna neðst sem segir á hvaða tíma sólarhringsins ég opna mig...) þegjandi þörfina síðastliðna mánuði, fattaði minn upp á því hvernig á að breyta formatinu! kom þá í ljós að ég var alltaf á la time, rosa sniðugt sko... hefði verið allt í lagi svona ca 1999 - 2001 enda eyddi ég þá mestum tíma mínum í sf, sem nota bene er í sama tímabelti og la. en er ekki að virka alveg eins vel þegar ég húki á klakanum...

talandi um klakann, hvenær í andsk... á þetta sumar að koma?

note to self...

mundu það bara, hænuhausinn þinn, að reyna ekki að blogga eftir að hafa drukkið ótæpilega af hvítvíni heilt kvöld, og þar að auki sturtað í þig nokkrum staupum af einhverju mun sterkara, því þú skilur ekki einu sinni sjálfur hvað þú ert að reyna tjá þig um!