íslenzkt, já takk!
ok, ég veit ekki hvað það er, ekki er ég nú neitt sérstaklega illa haldinn þannig lagað sé, malla alveg sjálfur ofan í mig eitthvað á næstum hverju kvöldi... en kannski er ég bara svangur (allar líkur fyrir því þar sem nú er komið hádegi) en mig dauðlangar í;
kjötbollur í brúnni sósu a la mamma og mús og sultu
djúpsteikta ýsu með öllu tilheyrandi
kássu (nautahakk) með pasta og mús og sultu og bíldudals grænum
kássu (svínakjöt) með karbullum og sultu og salati
nætursaltaða ýsu með öllu og tómatsósu líka
svo seinna í dag væri ég alveg til í;
vöfflur með sultu og rjóma
pönnukökur með sultu og rjóma
hnausþykka djöflatertu með miklu súkkulaði og enn meiri rjóma
púðursykurstertu
kannski langar mig bara í kartöflumús, og sultu, og rjóma...?
gettu einu sinni hvar ég verð í mat í kvöld! reyni örugglega að sníkja kvöldkaffi líka - núna ætla ég að fara upp á kaffistofu og gráta ofan í þriggjamínútnanúðlubollan minn...

2 Comments:
"Djúpsteikta ýsu með öllu tilheyrandi" ???!? Bjakk, mætti ég þá frekar biðja um steikta ýsu (á pönnu, ekki djúpsteikt takk fyrir) í raspi, og auðvitað með öllu tilheyrandi og miklu af lauk! :D Og talandi um steikta ýsu, mmmmmmmmmm mig langar í!
knús,
BK
sko... ýsa í orly, svona fish'n'chips dæmi, fékk sollis fyrst á búlgaríu '77, með ferskri sítrónusneið. það var fyrir tíma kommúnistanna og þá skein sól í heiði og innfæddir léku við hvurn sinn fingur, voru meira að segja allt of almennilegir til að pretta okkur saklausa túrhestana... good times...
Skrifa ummæli
<< Home