miðvikudagur, júní 04, 2008

það rann

líka upp fyrir mér nýlega (núna rétt í þessu jafnvel, þar sem atburðir gærkvöldsins meltast í litla sæta heilabúinu mínu og eru um það bil núna að raða sér niður í skipulegar og settlegar raðir áður en þeir trítla svo upp í meðvitundina aftur) að ég get andskotann alla hluti, í bandi.

bandi? já sko, eins og alþjóð veit er ég allt að því víðáttu lofthræddur (ok, ekki allt að því). og í gærkvöldi tók ég mig til og kleif 12-ish metra háa klettasprungu einn og hjálparlaust. eitthvað sem ég hélt ég ætti aldrei eftir og myndi aldrei geta. kennir manni að efast ekki (svo mikið) um sjálfan sig.

hvað kemur bandið málinu við? jú ég hefði auðvitað ekki lyft fótum af jörðinni án þess að vera tryggilega tryggður (í bak og fyrir) í bandi því annars hefði ég örugglega dottið og stórslasað mig og þú myndir aldrei lesa um þessar svaðilfarir mínar á blogginu mínu. í mesta lagi lesa dánartilkynningu í blöðunum, kannski hefði ég komist í fréttir; "lofthræddur ræfill á vegum hjálparsveitar skáta í reykjavík stórslasaðist þegar hann hrapaði við klettaklifur í stardal í gærkvöldi."

en það sem ég vildi sagt hafa (held ég) var eitthvað á þá leið að maður getur ótrúlega hluti, hluti sem engan (í minni fjölskyldu) hefði órað fyrir að væru mögulegir, bara ef maður fílar sig temmilega öruggan og þarf ekki að hafa áhyggjur af því að slasa sig eða hrapa til bana. merkilegt alveg. svo er þetta líka ógsla gaman sko!

2 Comments:

Blogger Unknown said...

Bara smá athugasemd. Þú ritar: "í mesta lagi lesa dánartilkynningu í blöðunum, kannski hefði ég komist í fréttir; "lofthræddur ræfill á vegum hjálparsveitar skáta í reykjavík stórslasaðist þegar hann hrapaði við klettaklifur í stardal í gærkvöldi." ... Sko, ef það hefði verið birt dánartilkynning um þig eftir þinn aulaskap hefði þá ekki frekar verið fjallað um að þú hefðir látið lífið við að hrapa, held það flokkist sem alvarlegra/mikilvægara en að slasa sig (þó þú hefðir að sjálfsögðu gert það líka, bara ekki þurft að dunda þér við að batna).
Bara pæling ...

knús (og ekki hrapa neitt fyrir vestan, engin öryggisreipi þar!) ;o)

13 júní, 2008 13:57  
Blogger birkir said...

já en sko; fyrst hefði ég bara dottið og stórslasað mig. svo hefði liðið húrrast með mig á spítala (reyndar kannski örlítið snúið mál þar sem ég ók rútunni og enginn annar með meirapróf (en við látum það ekkert trufla okkur)) og svo hefði ég legið þar helsár í tvo og hálfan sólarhring og síðan látizt, eftir hetjulega baráttu, af sárum mínum. skiljú núna?

29 september, 2008 21:07  

Skrifa ummæli

<< Home