föstudagur, apríl 21, 2006

án titils

góðan dag og gleðilegt sumar! - svona hef ég byrjað alla póstana sem ég hef sent í dag, amk hingað til. þau undur og stórmerki gerðust nefnilega í gær að sumardagurinn fyrsti reið í hlað með sól í heiði og yl í hjarta. í dag gengur svo á með haglélum og viðbjóði. ekki gamalmenni út sigandi, bókstaflega... það var löggilt gamalmenni statt hjá mér áðan og hann neitaði að fara út fyrr en slotað hafði. mér var sosum alveg sama, stór salur og svona. annars slotaði til rétt í þann mund er ég hafði afgreitt manninn þannig að ég slapp fyrir horn.

það hefur löngum þótt bera mikilmennskubrjálæði landans glöggt vitni að ákveða að hér skuli koma sumar strax eftir páska. íslendingar lengi verið óþolinmóðir auðvitað en sumar í apríl? ég meina, hey common! sko, hrafnaflóki vissi alveg sínu viti þegar hann ákvað að kalla pleisið ísland, hér er og var nánast andskotann ekkert annað að finna en ís og klaka. jú jú, einhverjar hríslur voru hér og þar á stangli á þessum tíma en blessaðar skjáturnar hafa fyrir löngu nagað þær í sig. sand og grjót, upp í mót...

lagðist út um páskana, fór í ferðalag, fyrst vestur, svo suður. skrapp til hólmavíkur og setti hraðamet í leiðinni. ók hraðast á um 140km hraða, vissi ekki að musso kæmist svona hratt, en það kostaði líka sitt, olían rann næstum því viðstöðulaust í gegn. hafði fyllt tankinn áður en ég fór af stað og setti svo rétt tæpar kr. 7000 á hann áður en lagt var á tröllaheiðina til móts við drangajökul. sú ferð gekk með eindæmum vel fyrir utan það að radial dekk eru ekki gerð fyrir það að hleypa úr þeim niður í 2 pund. grey playmo fór því niður í 1 pund og svo í 0 pund, tvisvar. ég vil nú meina að þetta hafi verið samantekin ráð eins bílstjóra og kóara á 38" breyttum jeppa, já eða patrol. það er náttúrulega ekki jeppi.

sá gunnarinn vinna þvílíkan leiksigur á fjölum braggans en bragginn er aðsetur leikfélags hólmavíkur sem er áhugamannaleikhús. en það skiptir engu máli, leikhús er ekki leikhús án aðseturs og fjala. sveitavargurinn er ekki með bíó, en það er leikhús og félagsheimili í hverju einasta krummaskuði.

sá líka fleiri hólmvíkinga, þeir voru allir jafn önuglyndir og mig minnti. það voru helst þessir aðfluttu sem áttu það til að glotta óvart út í annað öðru hvoru. hitti líka ástu silju og báru örk sem er nýi bestasti vinurinn minn. þess ber að geta að hún var afskaplega feimin við mig fyrst og vildi helst ekkert hafa með mig að gera, hvorki sjá mig né heyra enda var ég frekar kumpánlegur við hana sem og aðra í hennar fjölskyldu. þetta rjátlaðist þó fljótlega af henni enda venst ég líka asskoti vel þó ég segi sjálfur frá.

á páskadaginn sjálfan kvaddi ég svo með kurt og bí enda fjölskyldan á leið í brekkuleit, tóku með sér skíði og snjóþotur og sitthvað fleira sleipt. brekkuleitin held ég hljóti hafa gengið vel enda leit að lófastóru flatlendi þarna vesturfrá. setti svo annað hraðamet í bæinn til þess eins að taka skarpa vinstri beygju og burrast austur í mörk hvar ég lá makindalega í leti næstu daga eða fram eftir degi í gær. eina sem truflaði þessa langþráðu hvíld voru áhyggjur af ketti sem var of lengi úti og væl í öðrum ketti sem mátti ekki fara út.

núna hefur þrældómurinn tekið við - spá að fara í heimspeki í haust...

mánudagur, apríl 10, 2006

og þá vitum við það! - part deux

nema hvað, (sjá aðeins neðar vegna tilvísunar í pistil(?) með næstum alveg sama nafni) rodin hafði sem sagt mig í huga þegar hann skapaði sitt þekktasta verk. ok ekki mig sjálfan í þessu jarðneska formi sem ég er í þessa dagana (ekki svo að skilja að ég trúi á önnur jarðnesk form á öðrum dögum, þetta var einfaldlega til áherzluaukningar) heldur hinn andlega mig lausan við fjötra líkamans og...

crap, ég nenni þessu ekki!

en sem sagt, according to (klick á linkinn í fyrirsögn hins pistilsins) er ég svona mikill og djúpur hugsuður og ætti því að einbeita mér að og læra:
heimsspeki
tónlist
guðfræði
listasögu
erlendu tungumáli

það eina sem kemur mér virkilega á óvart er að fyrst ég er svona talentaður hugsuður, af hverju á ég þá bara að læra eitt erlent tungumál? af hverju ekki tíu eða tuttugu? eða bara sjö? af hverju bara eitt?
guðfræði? og hvað? verða prestur? kræst, fyrsti og eini vígði guðleysinginn á íslandi? nei, barasta held ekki, en takk samt.
tónlist? jú jú, hlusta alltaf voða mikið á tónlist en hef aldrei náð því að læra á eitt einasta hljóðfæri, held þetta sé því sjálfdautt.
listasaga? jú hef velt því aðeins fyrir mér. það litla sem ég hef lært hefur mér fundist gaman að læra, sérstaklega 20. aldar listasaga í bandaríkjunum. það var bara svo margt og mikið í gangi á þessum tíma, heimsstyrjaldirnar, víetnam stríðið ofl. og það hafði náttla mikil og bein áhrif á listasögu landsins, teygði líka anga sína upp á klakann og víðar. en ég get hins vegar aldrei munað nöfn og ártöl eða hvað kom á undan þessu eða eftir hinu, svo ix nay on the aga say...
phílósófía? erm... já, ég get amk bullað af mér hausinn við réttar kringumstæður, velt upp ýmsum sjónarhornum á ýmsustu málum og málaflokkum... en! þá finnst mér ég líkjast blessuðum helvítis atvinnupólitíkusunum okkar of mikið só nó effing vei!

then what shall i, oh darling, ever do (insert momentary pause for dramatic effect) with my life...?

og hvað svo?

ég meina, regnið lemur kofann utan og desibilafjöldinn innandyra er kominn langt upp fyrir heilsusamleg mörk. þarf reyndar ekki mikið til þar sem eftir mæni hússins er birtuígegnhleypandi (sko, ekki gegnsætt) bárujárnsplast sem bylur í á við tóma tunnu, sérstaklega þegar gefur yfir ískalt og stálhart stingandi ísregn.
inni í kofanum er svo lítið að gera nema hanga í tölvunni og spila mafíósatölvuleiki á netinu. reyndar ekki komist í það sjálfur en germaninn segir þetta bara tóma snilld. annars segir germaninn svo margt að ég er löngu hættur að hlusta á hann, segi bara já og kinka kolli hist og her. kannski er það bara óskhyggja í mér en þó finnst mér eins og aðeins hafi minnkað um málræpuna hjá germananum eftir að handboltaguttinn var ráðinn. í raun og veru held ég þó samt að hún hafi aukist til muna en dreifist einfaldlega víðar. skelfilegast finnst mér samt þegar ég er í miðju samtali við kúnnannn og allt í einu og fyrirvaralaust skellur á okkur málræpuflóðbylgja úr verstu átt. við sitjum svo eftir aurvotir og blanco með tóman spurnarsvipinn á smettinu. í fimm metra fjarlægð situr svo ingjaldsfífl með sólheimaglott og telur sig hafa bjargað deginum þegar hann í raun og veru rétt náði að klúðra sölunni. ég hef reyndar reist flóðvarnargarð úr skrifstofuhúsgögnum á milli okkar en þegar spýjan á upptök sín ofan við efri mörk flóðvarnargarðsins og lýtur ekki jafn sjálfsögðum grundvallarlögmálum eins og þyngdaraflinu er ekki margt hægt að gera. c'est la vie sagði maðurinn og eyddi restinni af deginum í óteljandi æfingar í tilgangsleysi...