hennar konunglega hátign
prinsessan af bauninni, hennar háæruverðuga tign, perla
sem sagt, systirin elskulega er í londin, hrmpf, og yðar einlægur af góðmennskunni einni saman, bauðst til að vaka yfir velferð einkadótturinnar
nema hvað, hennar konunglega hátign (hkh), prinsessan af bauninni, við tilfærsluna úr konungs... nei afsakið, drottiningarríkinu sigtúni, yfir í gúlagið í skipholtinu, varð að hennar hæstæruverðugustu hátign (hhh), drottningunni af haltukjaftiogéttuskít... hvæsti og urraði á allt og alla og ekki neitt, hljóp í felur, undir stól og rúm og hvað sem helst gat, að hhh mati, veitt henni skjól fyrir þessu trölli og mann... eh, kattarræningja sem bróðir hennar, hirðfíflið zophus hafði, af afbrýðiseminni einni saman örugglega, lagt lag sitt við...
og í fjörtíu daga og fjörtíu nætur (að mati hhh örugglega þó samkvæmt okkar tímatali hafi dagarnir og næturnar aðeins verið fjórar) urraði litla saklausa barnunga drottningin og hvæsti á ljótu skrímslin og varði heiður sinn sem best hún mátti
svo hefur hún nú sennilega þróað með sér nett stokkhólmsheilkenni því hhh er næstum hætt að urra á skrímslið en, og þó svo hún hafi deilt sæng eitt eftirmiðdegi með honum bróður sínum, hvæsir hhh enn á hann...

1 Comments:
Æ, hún er náttúrulega BARA yndisleg, þessi drottning mín. :) Hún er nú alveg búin að taka þig í sátt, vill meira að segja lúlla hjá þér í sófanum svo hvað ertu að kvarta?! Reyndar viðurkenni ég að hún tók þig ekki í sátt fyrr en hún var flutt aftur heim til sín í Sigtúnið og hafði sitt öryggisnet, þeas "mömmu" í herberginu ... en samt, hún tók þig víst í sátt! ;o) She luuuuuuuuuuuuvs you!
Kannski var það bara Zophus sem hún var ekki að fíla, urrar á hann hvar sem er og hvenær sem er, enda eru stóru bræður til þess eins að maður geti urrað á þá... ;o)
knús!!
Skrifa ummæli
<< Home