miðvikudagur, júní 01, 2005

ég vissi ekki...

að viðskiptafræðingar, eða til að vera tæknilega kórréttur*, verðandi viðskiptafræðingar, hefðu húmor...

satt best að segja hélt ég að það væri ekki hægt. líffræðilega útilokað. ef heilinn í þér ræður við viðsktiptafræði þá ipso facto, getur hann, heilinn í þér þeas, ekki ekki ráðið við húmor. þetta er svona kók vs pepsí lögmál, ef þér finnst kók gott þá getur þér ekki fundist pepsí gott, palettan í þér getur ekki verið svo klofin...

annað væri líka hróplegt órréttlæti, ef þú ætlar á annað borð að verða viðskiptafræðingur og græða multimilljónkrónukallapeninga þá er sko eins gott að þú sért ekki fyndinn líka, sko fyrir okkur hina! annars þurfa peta og wwf og greenpeace að hætta dýraverndunarstarfsemi og snúa sér að viðhaldi annarra starfstétta homo sapiens. af hverju? spyrð þú virkilega af hverju? það segir sig nú bara sjálft; ríku, fyndnu viðskiptafræðingarnir fjölga sér og smám saman ná þeir yfirráðum á jörðinni og við hinir leggjumst af, deyjum drottni okkar (ekki honum mammoni nota bene, mammon sér um sína) fjölbreytileika mankynsins verður ekki lengur við haldið og tegundin líður undir lok...

þessi trú mín var höfð að engu af einum manni í endurteknu kastljósi í kvöld, breki karlsson sagði brandara. það sem verra er að ég stórefast um að margir hafi náð honum, brandaranum sko, það þýðir því einfaldlega að verðandi viðskiptafræðingar (ok, amk einn verðandi viðskiptafræðingur) eru ekki bara húmorískir heldur hafa þeir (ok, amk þessi verðandi viðsktiptafræðingur) sérlega elektivískan húmor...

brandarinn...? "það má því segja, að framhaldsskólanemendur fá falleinkunn í fjármálalæsi, ef það er ekki ofstuðlun..." náðiru honum? ekki? lestu hann þá aftur...

en það er nú svo margt sem ég ekki veit

*það skal tekið fram að tæknilega hef ég ekki hugmynd um hvað orðið kórréttur þýðir, það bara passaði eitthvað svo akkúrat þarna...

2 Comments:

Blogger anitahaf said...

korrettur er flott ord... og var ekki ekki verdandi fjarmalasnillingurinn bara ovart ad segja brandara... slumbadi kannski bara a thetta... og bara ther thotti fyndid ;-)

07 júní, 2005 17:22  
Blogger birkir said...

kannski óvart, kannski ekki, en ég hef amk fengið staðfestingu frá fjölskyldumeðlimi að ekki bara mér einum þótti þetta fyndið... og þó, ég er ekki viss um að henni þótti það fyndið, en hún náði þó djókinu, og það í fyrstu atrennu... - en ef henni þótti þetta fyndið þá er þessi skrýtni húmor kannski bara í ættinni... þýðir það að ég og breki karlsson erum skyldir? andskotinn! jæja, hann hefur amk húmor...

08 júní, 2005 12:55  

Skrifa ummæli

<< Home