þriðjudagur, mars 14, 2006

og þá vitum við það!

Your Scholastic Strength Is Deep Thinking

You aren't afraid to delve head first into a difficult subject, with mastery as your goal.You are talented at adapting, motivating others, managing resources, and analyzing risk.

You should major in:

Philosophy
Music
Theology
ArtHistory
Foreign language

mánudagur, mars 13, 2006

the satisfaction of a job well done!

og hvernig skyldi maður þíða þetta yfir á íslenskuna? fullnæging vel að verki staðið...? uhm, sennilega ekki.
ekki svo að skilja að ég hafi ætlað að velta fyrir mér óþíðanlegum amerískum/enskum frösum í allan dag. (þíða... þýða... þíðandu og þulur, þýðandi og þulur...? andsk, hvað veit ég?) nema hvað, ehm... hvar var ég? já, sem sagt, ég svona eiginlega bara upp úr þurru tók svolítið til hjá mér um helgina. réttara sagt, ég vaskaði upp það sem ég átti óhreint í eldhúsvaskinum plús pressukaffikönnuna (eða kaffipressukönnuna (eða kaffikönnupressuna)) sem ég man ekki hvenær ég notaði síðast en það hlýtur að vera frekar langt síðan því ég drekk ekki kaffi sjálfur. jæja ég sem sagt skveraði eldhúsið af og baðið líka, já svona nokkurn veginn. - eh, ég reyndar er að fatta það núna þegar ég hugsa um það að ég gerði svosum engan rosalegan slurk í heimilisverkum en það bara leit þannig út þegar ég var búinn. jújú, þvoði slatta upp og svona. hreinsaði sandkassann hans zophusar, fór út með ruslið, setti tvisvar í vélina og þurrkarann... nú, þetta tók ca tvo tíma en einhvernveginn virtist þetta vera töluvert meira og merkilegra, íbúðin leit amk töluvert betur út og akkúrat þessvegna var ég líka svona voðalega stoltur...
en sko pointið var... ehm... uuu... er... æji, ég man það ekki, skiptir það einhverju máli hvort eð er...?