mánudagur, desember 05, 2005

snillingar

þessir lagaprófessorar í ráðuneytunum, feitir kerfiskallar og möppudýr!!!

ok, ég hef kannski ekki alveg traustustu heimildir í heiminum fyrir þessu en eftir því sem mér hefur verið sagt þá mega fasteignasalar nú, eftir nýum lögum sem nýlega tóku gildi, hvorki taka til sölumeðferðar eignir í eigu, né selja eignir sem þeir hafa til sölumeðferðar til, barna sinna og/eða annarra skyldmenna.
sem einfaldlega þýðir að ef þú ert fasteignasali þá er þér bannað að selja eignir skyldmenna þinna, og þér er líka bannað að selja skyldmennum þínum þær eignir sem þú hefur til sölumeðferðar.

ef þetta er rétt þá er þetta auðvitað hróplegt óréttlæti og mismunun starfsstétta. jú jú það var einhver krimmi í blöðunum í sumar fyrir það að selja syni sínum fasteign sem hann hafði til sölumeðferðar, langt undir markaðsverði. en þetta er auðvitað bara undantekningin á reglunni. en gott og vel, fasteignasalar mega ekki höndla með eignir fyrir skyldmenni sín, til að jafnræðis sé gætt ættu þá bílasalar ekki mega höndla með bíla fyrir sín skyldmenni, ættingjar bónusfeðga og allra sem vinna hjá baugi, aðföngum, bónus, hagkaupum osfrv. verða að versla í matinn í krónunni eða nóatúni og vice versa auðvitað. ef einhver skyldur þér vinnur hjá eða á hlut í sambíóunum verður þú að gera svo vel að fara í smárabíó, laugarásbíó eða regnbogann. og ef einhver í þinni ætt vinnur hjá átvr verður þú bara að gera svo vel að vera edrú alla tíð, eða finna díler. ég gæti svo sem haldið lengi enn áfram en þú nærð meiningunni.

láttu ekki eins og asni maður, gæti einhver sagt. fasteignasalar eru oft á tíðum að höndla aleigu fólks, en ekki andvirði innihalds einnar innkaupakerru. jú, rétt er það, en hefur þú einhverntíma spáð í því hvað þú fyllir margar innkaupakerru yfir ævina? eða kaupir og selur marga bíla? nei, það hefur auðvitað enginn spáð í það, amk ekki möppudýrin.

annað sjónarhorn er að fasteignasalar, með það til hliðsjónar að þeir eru einmitt oftast að meðhöndla veraldlega aleigu viðskiptavina sinna, eiga að vera 100% hlutlausir á báða bóga. en ef við hugsum rökrétt þá erum við mannfólkið aldrei 100% hlutlaust þegar kemur að samskiptum við annað mannfólk. við drögum ályktanir um og flokkum fólk sem við hittum í ákveðna dilka á innan við 10 sekúndum frá því við sjáum það í fyrsta sinn. og við erum því löngu búin að ákveða hvort okkur líkar betur við þessa manneskjuna eða hina manneskjuna og við reynum alltaf, meðvitað og ómeðvitað, að koma betur fram við þá sem okkur líkar vel við. að ég tali nú ekki um vini og kunningja þó þeir séu ekki skyldir okkur.

en þér góði minn/góða mín, er semsagt, í þessari stétt sem öðrum fremur hefur óverðskuldað slæmt orð á sér, bannað að eiga viðskipti við eina fólkið sem þú treystir!

bölvaðir snillingar þessir kerfiskallar