mánudagur, júní 13, 2005

á-i! takiði sólina af mér, takiði sólina af mér...!

stolið og stælt - skyldi laddi fara í mál við mig og krefjast höfundarréttarlauna?

hvað um það, nema ég er ekki nema rétt búinn að monta mig af því að hér á íslandinu góða sé sólin sko góð (og eiginlega næstum því, ef það væri ekki barasta landráð að segja það, betri en landið sjálft) rétt ylji manni um hjartaræturnar og kasti af manni skammdegisþunglyndinu og sé sko ekkert að vesenast í því að stinga mann eða neitt, sé bara besti vinur barnanna og allt, og þá þarf hún auðvitað að stinga mann, með rakvélablöðum og stórum rýting, og það beint í augun!

ok, svo ég reyni nú að útskýra mál mitt aðeins þá er því þannig háttað til að í minni vinnu sit ég í óttalega ræfilslegum gler og járnkassa, ok, sit á stól við skrifborð bakvið tölvu osfrv. inni í viðbyggðum húsgarmi úr gleri og málmi (meira að segja þakið er að hluta til úr gleri) sem á veturna hefur álíka mikla varmaeinangrandi eiginleika og grýlukerti og á björtum góðviðrisdögum eins og í dag líður mér eins og ég sé þræddur á shishkebabtein á hægum snúningi yfir stóra grillinu í eldhúsinu í helvíti og ofan af himnafestingunni brosir sólin sínu breiðasta, gegnum áður að ýjuðum þakglugga, nær frákastinu af glansandi skrifborðinu og skorar milljón stiga körfur í bæði augun á mér samtímis þar sem ég sit og reyni að ná þýðingarmiklu augnsambandi við kúnnann og ávinna traust hans á meðan ég engist um eins og krókþræddur ánamaðkur...!

samt náði ég, í síðustu viku, að selja þrjá fólksbíla, tvo fully loaded 33" breytta jeppa og þrjú mottorhjól - damn i'm good!!!

held nú samt að ég fari og tali við foringjann og biðji, nei, krefjist þess að fá gardínu fyrir helvs... þakgluggann!

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Go for it boy!! En hvernig er dregið fyrir og frá þakglugga?? Svo áttu svo geggj flott sólgleraugu ... verður bara svalasti (og um leið óumflýjanlega hallærislegasti) sölumaðurinn á svæðinu og tekur þau ekki niður ALLAN DAGINN! Athugaðu hvað Benni segir þá ;o)

knús,
systa (sem er btw ennþá brunnin eftir helv sólina, ekki stuð)

15 júní, 2005 17:41  
Blogger anitahaf said...

ja, krakkar, thad er sama vesenid med solina herna... er ad bogna undan alaginu af thvi ad reyna ad taka akvordun um hvort eg eigi ad halda mig vid 20 vornina eda skella mer i Hawaian tropic oliuna i dag...

solgleraugun upp Birkir.. mer lyst voda vel a tha hugmynd hennar systu thinnar... hun ber greinilega hag thinn fyrir brjosti!

16 júní, 2005 09:17  
Blogger birkir said...

ha? hvað? ber brjóst? kameinaru? varstu ekki að segja að þú hafir ekki fundið strípalingaströndina?! en það þarf kannski ekki strípalingaströnd til, og svo hangi ég einn í rigningunni á akureyri! gæðum heimsins er greinilega misskipt...

20 júní, 2005 00:43  

Skrifa ummæli

<< Home