miðvikudagur, ágúst 30, 2006

jæja,

nú er komið haust og ég ekki innritaður í heimspekina, fattaði það nefnilega allt í einu að ég á frekar erfitt með að vera á tveimur stöðum samtímis. svo er foringinn svo helvíti nízkur að ég stórefast hreinlega um að hann sé tilbúinn til þess að borga mér fyrir það að fara í skólann. verst er að ég er ekki nógu ríkur til að gera 160 milljón króna starfslokasamning.

fylltist réttlátri reiði í morgun, fór sko í vr til að fá leiðréttingu minna mála og komst að því (sem ég auðvitað vissi fyrirfram) að foringinn gerir sitt allra allra bezta til að svindla á mér. og hann er nú yfirleitt helvíti góður í því sem hann tekur sér fyrir hendur, sérstaklega þegar kemur að halda fast í sitt (og annarra) í peningamálum!

einhverjum snillingi í vinnunni (lesist; helvs germaninn) datt það snjallræði í hug að stinga upp á því að vér auglýstum nýjan bíl hér á voru bloggi. no bloody motherfukcing way! fyrr skrái ég mig til ársdvalar í forgarði helvítis en að breyta því litla sem ég á sjálfur og ræð yfir í auglýsingamiðil fyrir foringjann, ekki svo að það lesi þetta nokkur einasti maður...

handboltahetjan er hætt, fór til ih að selja saab... hehehehehehe... ihihihihihihi... ahahahahahahahaha!!!

mánudagur, ágúst 28, 2006

i am not a stepford wife*

eða; ég er ekki stepfordísk eiginkona, í íslenskri þýðingu. nema hvað, ég tók mig til og skveraði af íbúðina í gær. og reyndar gott meira, tengdi heila uppþvottavél (jei!!!) hengdi upp gardínur, klappaði köttunum, já já báðum, setti í þvottavélina, osfrv... og ég er barasta alveg handónýtur í dag.

kannski hefur sú staðreynd að ég svaf í hámark 65 mínútur í nótt eitthvað með það að gera, hvur veit...? ég hef því verið eins og draugur upp úr öðrum draug í allan dag og alveg merkilegt hvað það hefur haft takmörkuð áhrif á vinnuna mína. helsta tilbreytingin sem ég fékk í dag var sú að fara í mjóddina og kaupa ýsu hjá dóra í hádegismatinn, og svo að labba út í sjoppu um þrjúleytið að kaupa mér sykusprengju svo ég stórslasaði mig ekki á skrifborðinu. ó, seldi sennilega líka einn bíl, kemur betur í ljós á morgun.

*ég vitna að sjálfögðu í frumgerðina, þessa svart/hvítu, ekki þessa með kallinum hennar sarah jessica parker og nicole kidman!