sunnudagur, febrúar 27, 2005

public service announcement:

bara ef það skyldi hafa farið fram hjá einhverjum, þá tilkynnist það, og nú opinberlega, hér með að ég er orðinn gamall...

ok, kannski ekki jafn gamall og sumir, en samt...:

það bar til tíðinda um þetta leiti, þeas fyrr í kvöld, að ég fór út úr húsi og á óformlega samkomu á einu af öldurhúsum borgarinnar, nánar tiltekið á ölstofu kormáks og skjaldar. og ég veit ekki hvað það var akkúrat við þetta kvöld, kannski fór ég of snemma af stað, kannski drakk ég ekkí nógu mikið áfengi eða kannski drakk ég það ekki nógu hratt, kannski hefði ég kosið fjölbreyttari félagsskap, kannski þetta, kannski hitt, kannski eitthvað annað...

hver sem ástæðan var eða er, þá verð ég bara að viðurkenna það að mér hundleiddist!

ergo; ég er orðinn gamall

hér einhversstaðar í þessum pósti áttu að fylgja heimspekilegar (með dash af þurrkuðum húmor) vangaveltur um dating (mating?) rituals of homo sapiens islandus með sér kapítula um staðarval athafnarinnar... en ég er gamall og þreyttur og nenni ekki meir núna...

yfir og út

áttu ekki konu...?

við vorum að þrífa bílana okkar, ég var hættur, ekki búinn, ætlaði að koma aftur næsta dag (sem ég og gerði). hann var enn að bóna sinn...

nei, svaraði ég, bara kött, sem auðvitað er ekki sami hluturinn.

samt á maður aldrei konu, þannig séð... við getum átt bíla, en ekki konur, og konur eiga ekki menn heldur ef út í það er farið... ekki frekar en ketti, milli míns og zophusar ríkir ákveðinn skilningur eða samkomulag; ég gef honum að borða og drekka (bara vatn), veiti honum húsaskjól og þríf kassann hans, og í staðinn fæ ég að klappa honum... hann sefur líka hjá mér en það er algjörlega platónískt

við eigum því aldrei hvort annað, og skiptir þá engu máli hvort við erum gift eða ekki, eignarhaldið er aldrei fullkomnað, skjalfest, vottað og þinglýst...

að eiga konu (eða mann fyrir þau ykkar sem það kjósið frekar... ) er því mjög svipað og eiga kött, ykkar á milli ríkir ákveðið samkomulag eða skilningur... skipst er á, á þar til gerðum jafnréttisgrundvelli, ást umhyggju og hlýju fyrir, vonandi, ást hlýju og umhyggju, þið borðið saman, horfið á sjónvarpið saman, þrífið íbúðina/húsið saman, sofið saman... ok, kötturinn tekur ekki mikinn þátt í viðhaldi heimilisins og vonandi eru meiri innileikar í rekkjubrögðum tvegga einstaklinga af gagnstæðu kyni og sömu tegund en milli mín og zophusar og tilfinningar ykkar í garðs hvors annars rista vonandi dýpra... en að því slepptu er þetta ákaflega keimlíkt...

og þó, hvað veit ég...?

fimmtudagur, febrúar 17, 2005

crap...!

af hverju gleymir maður alltaf að fara í búðina...? nei, ekki mjólkurbúðina, það gleymist ekki. hina mjólkurbúðina, þú veist, þessa sem actually selur mjólk og brauð og kartöflur og klósettpappír...? það er akkúrat það sem mig vantar núna, mjólk og kartöflur (nei, ég á alveg nóg af brauði og klósettpappír, en takk samt). ætlaði að fá mér svona english breakfast sausages með bacon og mús, já ég veit það er kvöldmatartími núna, só...? það er enginn sem segir að ég þurfi að borða english breakfast sausages í morgunmat, hvað yrði þá líka um traditional jógúrt/skyr.is morgunmatarhefðina mína?

en, sem sagt; ég er svangur, á ekki karbullur, lem tölvuna mína og maula á þurrkuðum og hunangsgljáðum banönum frá góðu fæði í kópavogi (note to self; hringja í gott fæði í kópavogi og fá sponsorship).

styðjum íslenskt, það hef ég alltaf sagt, og nú er ég farinn út í 10-11 að styðja íslenska multimilla, þe stórkaupmennina okkar, að kaupa íslenskar þykkvabæjar rauðar og styð þar með einnig fátæka íslenska grænmetisbændur.

áfram unga íslands æska...

miðvikudagur, febrúar 16, 2005

af hverju...

í óskupunum þarf ég, þegar það er stormur; suðvestan 15-20 m/s, að sitja inni í ísköldum, óupphituðum, flísalögðum gler- og járnkassa sem heldur hvorki vatni né vindi og snýr í suðvestur??? helvítið lúkkar vel, það vantar ekki. en það er líka allt og sumt. hér inni er álíka kalt og úti (að frádregnum hinum marg- og víðfræga windchill factor auðvitað).

þegar sólin skín er ég álíka blindur og nýfæddur kettlingur, og þegar heitt er úti líður mér eins og í 1600w örbylgjuofni og þegar svona veður er úti er ég eins og frostbitinn eskimói með grýlukerti í skegginu...

hvað hugsa arkitektar eiginlega? hafa skal það sem betur lúkkar og skítt með fólkið sem vinnur í húsinu svo lengi sem ég þarf ekki að vinna þar? má ég þá frekar biðja um torfkofa með hlýju og notalegu baðstofulofti.

það er svo að sjálfsögðu bara símadaman og receptionistinn sem fær sinn eigin litla og netta rafmagnshitablásaraofn til að ylja sér við... bíðiði bara þangað til vinnueftirlitið, vr og dv kemst í málið; "ungur maður missir báða fætur við hné og sjö fingur vegna kals! - sjá nánar á miðopnu"
"já, ég sko var bara í vinnunni, sat við skrifborðið mitt bara eins og venjulega, var að vísu svolítið kalt sko en maður áttar sig ekkert á þessu, þetta gerist svo hægt og læðist í rauninni bara aftan að manni, að minnsta kosti hjá mér í þessu tilviki. það auðvitað blekkir mann soldið að vera inni, þá á maður ekkert von á þessu þannig lagað þó kalt sé. þegar maður var yngri var manni nú alltaf bara sagt að vera ekki með aumingjaskap og vinna sér til hita. það er nú ekkert alltaf hlaupið að því í svona skrifstofuvinnu.
nú, svo kem ég bara heim og tek þá eftir því að puttarnir á mér eru svoldið skrýtnir á litinn en ég hélt ég hefði bara komið við eitthvað sem hefði smitað svona frá sér, kannski ekki alveg rökrétt hugsun svona eftir á að hyggja en maður kannski hugsar ekki alveg rökrétt við þessar aðstæður, svoldið kalinn á heila líka...
seinna um kvöldið þegar mér var farið að hitna aðeins finn ég fyrir miklum óþægindum og hreinlega bara kvölum, það ofan á þennan skrýtna lit varð til þess að ég hafði samband við heimilislækni og hann bendir mér að fara upp á slysó. þeir reyndu nú að tjasla upp á mig læknirarnir en svo fór sem fór og nú vantar á mig báðar lappirnar og flesta puttana, verð að viðurkenna að mér finnst þetta helvíti hart sko...

þriðjudagur, febrúar 15, 2005

uhmm...

verðandi hr. hrútleiðinlegur...: http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1125249

annars held ég að þetta sé nú ekki alveg rétt. í greininni segir ma; Mensa eru alþjóðleg samtök ofurgreindra. Greind drengsins mælist 137 stig en hann er yngsti félagi í samtökunum held þetta geti ekki verið rétt, hljóti amk eiga vera 173 stig, eða í hæsta máta 237 stig... veit amk um einstaklinga sem mælst hafa með 134 stig og 145 stig og þau er ekki svona gáfuð...

14. febrúar

sem sagt, valentínusardagurinn...

hrmpf...

oj bara segi ég! já, segi, skrifa og meina oj bara! - jólin og nýárið búið og þrír mánuðir í páska þannig að hallmark (jamm, ameríska kveðjukortafyrirtækið (greeting cards...)) hafandi ekkert annað betra að gera (sennilega ekki nógu mörg afmæli, giftingar, jarðarfarir, etc. í jan - mars (þó maður hefði haldið að það væri fáránlega góð sala í "get well soon" kortunum þeirra)) og þurfandi eitthvað nógu djúsí til að koma veltunni af stað, fattaði upp á valentínusardeginum...

af hverju valentínus? jú, grey kallinn, sem var uppi einhverntímann í fyrndinni, nánar tiltekið á hinum myrku miðöldum, gifti eitthvað grey fólk sem var hreint og beint að drepast úr ást hvort á öðru, svo sem ekkert nýtt við það... nema hvað, af einhverjum þjóðfélagslegum ástæðum mátti þetta fólk ekki giftast, amk ekki hvort öðru, en presturinn velentínus, the silly bugger, sá aumur á þeim og gifti þau samt sem áður og týndi lífinu fyrir greiðviknina, var svo miklu miklu síðar tekinn í dýrlingatölu og er meðal þeirra sem til þekkja betur þekktur sem heilagur valentínus, verndari elskanda, og þá meina ég elskanda í fagurbleikum rómantískum barbara cartland skilningi en ekki holdlegum playboy tv eða þaðan af verra... so git yer dirty mind out of the gutter

eníveis, hallmark sá sem sagt snilldina, og gróðamöguleikann auðvitað, á bakvið þetta allt saman, dúkkaði hans heilagleika upp í moderne búning, auglýsti allann pakkann til helvítis og pöpullinn fylgdi opinmynntur á eftir, gasalega sniðugt eitthvað...

vér íslendingar vorum blessunarlega lausir við þetta kjaftæði allt saman þangað til seint á síðasta tug síðustu aldar að ónefnd útvarpskona á bylgjunni, frk. róleg og rómantísk með velgjulegu röddina, tróð þessu óumbeðin upp á þjóðina. íslenskar húsmæður á miðjum aldri gripu andann á lofti, nú loksins gætu þær, skilyrðislaust átt heimtingu á blómvendi amk einu sinni á ári því þótt kallinn gleymdi bæði konudeginum og afmælinu þeirra þá sæu íslenskir blómasalar í samvinnu við mónu og nóa síríus örugglega til þess að kallarnir gætu ekki mögulega gleymt valentínusardeginum...

áhrifagjarnir unglingspiltar slógust svo óvænt í lið með húsmæðrunum og gripu fegins hendi einu löglegu afsökunina til að vera rómantískir og gáfu vandræðalegum og töluvert þroskaðri unglingsmeyjum esso blómvendi - "já bara sko... þú veist... sko... í tilefni dagsins... þú veist... sko... það er valentínusardagurinn í dag..." og gáfu þar með til kynna, bara svona til öryggis, að þeir meintu sko ekkert með þessu, væru bara svona ofsalega huggulegir piltar og að viðtakandinn ætti nú aldeilis að geta séð það, ég meina, kommon...

ef stúlkukindin lét sér ekki segjast og tuldraði bara vandræðalega "eh... já, hérna sko, ég meina takk alveg sko..." og skimaði flóttalega í kringum sig var málið sjálfdautt og unglingspilturinn vinur okkar lét sig hverfa án frekari afsakana og með skottið verulega máttlaust og vandlega staðsett milli lappanna...

ef hins vegar, dísin drauma, tókst öll á loft við esso vöndinn (kr. 300,- á næstu bensínstöð) og smellti rembingskossi á rjóðan vanga, þá voru piltinum allir vegir greiðfærir (nei ekki vera svona ógeðsleg, við erum að tala um ofsalega sæta og saklausa unglings puppy-love ást og hrifningu, hitt kemur miklu miku seinna (amk þegar ég var á þessum aldri...)) og hann gat leyft sér að halda í hönd hennar og jafnvel bjóða henni í bíó...

eh... já, the point i was trying to make er einfaldlega það að við eigum ekki að þurfa einhverja made in america pseudo love fest til að gefa hvort öðru blóm einstöku sinnum.

mánudagur, febrúar 14, 2005

þú getur alltaf...

treyst sænsku apóteki til að gera jafn yndislegan hlut og koss ógeðslegan...: http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1125219

love...? anyone...?

a friend (see: http://anitahaf.blogspot.com/) asked; what is love? quoted the collins english dictionary, which, to sum up, and the way i understood it, says being in love is pretty much like not being in love... whatever sense that makes... so, to address the question (and perhaps ask another one, or two)...:

in a perfect world all of us would know what love is and how it feels to be in love, there would be no pain involved and/or no feeling of pain only comfortable bliss and you would feel butterflies in your tummy every time you saw your loved one, we all would. our love for one another would be as unconditional as a child's love for it's parents.

but we do not live in a perfect world...

so what constitutes for love in this imperfect world? honestly, i can't tell, not for all of us anyway. i am not the ultimate authority on love, far from it. but i think i may sort of almost have an idea what i think love is, or rather, and to answer your question, how i know when i am in love...

i did mention the butterflies already, it's also the deep feeling of warmth, how you literally feel your own heart warming up a couple degrees or more when you see your loved one, and then you feel that warmth spread through the rest of your body. it's how the time you spend together seems always too short and the time you spend apart is an eternity. it's how you are always thinking about him/her and the things you have done together and the things you haven't done together, yet. it's how you smile, giggle and even hum to yourself when thinking about him/her. and it is how you simply glow...

i could go on but that's enough for now...

so, and yes, a romantic fool i may be, and you can take credit for outing me as one :) and no, i didn't address the reckless hurting part simply because being the romantic fool i am in complete and utter denial about it...

but it's the getting to that's the tricky part...

seriously, denial is a big scary thing and we're all afraid of it. but every now and then we gather all the courage we can muster and, completely stressed out while at the same time trying to play it cool, ask someone we really like, or at least someone we think we might really like if only we could get to know him or her better, if he or she would like to get a cup of coffee with us, or tea, if you prefer...
if they accept, our frail little egos double or triple in size and that little person inside us does an awkward little victory dance whilst on the outside we are still trying to play it cool...
and if they reject, our frail little egos become even more fragile and the little person inside suddenly craves an overdose of chocolate (well, some do)... and then we take comfort in the fact that;
a) at least i asked and now i know
b) at least i won't waste more time thinking about him/her
c) it probably wouldn't have worked out anyway
d) he/she really doesn't know what a great catch he/she just missed
and e) thank god i don't have to face him/her again

the really tricky part is when you sort of know the person, it's someone at work, your best friends cousin is married to his or her sister and you all hang out a lot, he or she is your ex's brother or sister (please, for the sake of god, stay away from that one, it's just way too complicated...) or maybe you just have a mutual friend and see each other every now and then... whatever the situation is, the denial factor becomes almost too big...

so, the question remains, what to do and how to overcome the fear of denial... that's the real question, not what's the meaning of life... maybe they are the same? in which case it definitely isn't 42

sunnudagur, febrúar 13, 2005

án titils...

bauð litlu systur á american style í kvöld. átti það alveg skilið, er að búa til lítið forrit fyrir mig, forrit sem ég hélt myndi taka hana korter að búa til, tekur hana minnst 3 tíma...

enníveis, kom heim og sá stór og stæðileg grýlukerti hangandi framan á svölunum mínum. er á þriðju hæð og það er töluverð umferð gangandi vegfaranda beint fyrir neðan svalirnar og á hárréttu augnabliki getur eitt vel valið grýlukerti klofið mann og/eða konu í herðar niður, tjah, svo til, amk valdið óafturkræfum skaða...
skrýtið, af einhverjum ástæðum varð mér fyrst hugsað til þess að húseigendur eru ábyrgir fyrir þeim skaða sem hlýst af fallandi grýlukertum, sá fyrir mér málaferli sem geta bara endað á einn veg, slegið upp í risaletri á forsíðu dv... dramatískur? ég? kameinaru?
ákvað því að taka til minna ráða sem eini maðurinn með daglegan aðgang að nefndum svölum og fella grýlukertin áður en þau yrði manni og öðrum að fjörtjóni. upphófst þá mikil leit að hentugu verkfæri til niðurfellingarinnar. varð á endanum að sætta mig við sérlega óhentugt verkfæri. vopnaður skúringagræju, moppulausri að vísu, gekk ég út á snjóugar svalirnar og réðst til atlögu við kertin hennar grýlu sem földu sig undir svalahandriðinu og hlógu að mér og vopninu. það fór þó svo að lokum að ég hafði sigur og enginn óbreyttur borgari særðist eða féll þrátt fyrir það að einn úr þeirra röðum hafi gert sér lítið fyrir og trítlað yfir allt átakasvæðið eins og það lagði sig þegar bardaginn stóð sem hæst. svo vona ég líka að byggingar og auglýsingaskilti hafi sloppið án teljandi skaða en það á eftir að koma í ljós...

laugardagur, febrúar 12, 2005

er... hello...?

af hverju skyldi manni detta það fyrst í hug að skrifa á ensku...? (sjá titil) ekki svo að skilja að þó svo ég hafi varið umtalsverðum tíma í enskumælandi landi og þykist vera nokk meira en mellufær í málinu þá ætti mér sem íslendingi að vera mun eðlislægara að tjá mig á mínu eigin tungumáli. kannski eru þeir póstar sem ég hef lesið hjá vinum og kunningjum í dag (sem eru flestir á ensku) að hafa þessi áhrif...

hm...

annars er altari meðalmennskunnar ætlað að vera viðrunarstaður ólíkra hugsana sem á mig sækja. ekki þar með sagt að ég ætli mér að vera hallgrímur thorsteinsson netsins, né ber að skilja þessa einu setningu sem einhvers konar yfir- eða stefnulýsingu af minni hálfu - og ég lofa að blogga mjög óreglulega og ekki bara þegar ég er í góðu eða vondu skapi...

gott í bili held ég, amk fyrir fyrsta blogg...

ps - zophus biður að heilsa, krefst allrar minnar athygli og rúmlega það akkúrat núna so....