föstudagur, desember 22, 2006

en...?

um daginn tjáði ég mig, í hálfgerðu framhjáhlaupi, um þá upplifun mína að verzla mér buxur í ákveðinni herrafataverslun hér í bæ. það vill nefnilega svo skemmtilega til að þegar ég byrjaði í nýju vinnunni minni fylgdi því úttektarheimild í þessari áður að ýjaðri herrafataverslun. úttektarheimildin hljóðaði upp á tvennar buxur og tvennar skyrtur.

ég þóttist hafa himinn höndum tekið enda bráðvantaði mig bæði buxur og skyrtur. var og mikill hugur í mér þegar ég loksins mætti í búðina enda kominn til að gera stórinnkaup. það fyrsta sem ég rak augin í var þessi líka fína skyrta enda var henni þannig stillt upp að einungis blindur maður eða húsamús hefðu ekki tekið eftir henni. jæja, buxurnar keypti ég og var ekki lengi að því enda úrvalið mikið og gott. spurði svo um skyrtur og eftir að búðardaman vísaði mér á básinn "minn" (stærð nr.39) komst ég að því að það var ekki til ein einasta skyrta í allri búðinni sem mig langaði í. þóttist þó hafa unnið hálfan sigur og hélt hróðugur á braut.

í gær bar það svo til tíðinda að ég gerði jólatiltekt í slotinu. og viti menn, ég á nóg af buxum og átti til fyrir þennan ágæta verslunarleiðangur. kemst því ekki hjá þeirri hugsun að mér hefði verið nær, og svo auðveldlega getað, fjárfest í jakkafötum fyrir jólin.

fann samt engar skyrtur í tiltektinni...

fimmtudagur, desember 21, 2006

og þá er kátt í höllinni

ekki ætla ég að falla í þá gryfju að fara tjá mig hér eitthvað um pólitík. kemst hins vegar ekki hjá því að fagna því að egóisti nr. 1 í öllum heiminum (kannski fyrir utan bubba og bjögga buff) er farinn yfir móðuna miklu.

narcisismi hefur verið gríðarlega vinsæll hjá saparmurat niyazov og það sennilega allt frá fæðingu. hefur hins vegar ágerst gríðarlega á undanförnum árum. ef þú hugsar "who the fuck er sapa... eitthvað...?" þá upplýsist það hér með að hann var forseti túrkmenistan. túrkmenistan? er það eitthvað land úr tinnabók? nei, ég hélt það nú líka fyrst en það er víst til í alvörunni, ef ekki þá er þetta langlífasta aprílgabb í sögu moggans.

en nú er kallinn sem sagt dau og má þá búast við að fólki verði aftur leyft að reykja á almannafæri, hlusta á útvarpið í bílum sínum og að karlmenn fari aftur að sporta andlitshárum.

miðvikudagur, desember 20, 2006

það er

í mínum huga alveg á kristalstæru að það er eitthvað mikið að íslensku réttarkerfi. án þess að ég ætli að gera sjálfan mig sekan um það að vera pólítískt réttþenkjandi hlýtur manni að bregða við fréttir af dómsmálum sem enda á þann veg að einstaklingur hljóti sex mánaða fangelsi fyrir það að seðja hungur sitt, þó óheiðarlega hafi verið að verkinu staðið. sérstaklega þegar sama daginn er sagt frá því að annar einstaklingur hafi hlotið tveggja mánaða dóm fyrir að rækta lyfjagras heima hjá sér. en steininn tekur þó fyrst úr þegar þriðji einstaklingurinn fær netta áminningu og "skammastín" fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás.

eða er bara allt öfugt dagurinn í dag?

alveg finnst mér

með eindæmum leiðinlegt að bloggararnir sem mogginn auglýsir á forsíðunni sinni sé allir eitthvað að rausa um pólitík. oftar en ekki einhverjir gamlir skarfar sem einu sinni áttu sér draum um að komast á þing og þjóna íslenzku þjóðinni (lesist; komast í vel borguð og kósý hvítflibbadjobb með mörgum mánuðum í jóla- og sumarfrí ásamt sínu korteri af íslenskri heimsfrægð).

eini maðurinn sem ekki talar bara um leiðinlega hluti er zygmarr en kannski finnst mér hann bara ekki leiðinlegur af því að ég hlustaði á hann í den meðan x-ið var enn þá útvarpsstöð en ekki steingeldur auglýsingamiðill í gæruskinni. gæran var að vísu svo illa fest að fyrir hugskotssjónum mínum stendur gömul rolla gengin úr reyfinu og með tægjurnar í eftirdragi.

en kannski er þetta ekkert annað en öfund, kannski vil ég bara að fleiri aðilar lesi bloggið mitt og kannski þætti mér ekkert slæmt ef jafn öflugur auglýsingamiðill og sjálft morgunblaðið á netinu auglýsti mig og mínar spekulasjónir...

putta sleikja: ef ég hef talið rétt þá er þetta áttugasta kommentið mitt hér á þessari síðu. veit ekki alveg hvort mér á að finnast það vel að verki staðið en held svo sé ekki ef tekið er tillit til þess að þetta hefur tekið mig hátt í tvö ár. en ákveðið akomplisment er þetta engu að síður.

þriðjudagur, desember 19, 2006

jæja

ég er nú ekkert sérstaklega sleipur í hugmyndafræðinni né heldur heimspekinni, en ég komst að þeirri niðurstöðu í sturtunni í morgun að ég sé pragmatískur í hugsun. þarf að lesa kant, james, mead og schiller til að ákveða hvort þetta standist, verðum í sambandi eftir ca 7 ár...

annars hef ég líka ástæðu til að halda að ég sé raunsæismaður, aðhyllist svokallaðan realisma, en kannski er það bara sami hluturinn og pragmatismi. verðum í sambandi eftir 14 ár.

en í mínum einfalda huga er glasið aldrei hálf fullt eða hálf tómt, helvítis glasið er bara hálft. og hænan kom á eftir egginu, því eggið varð að hænunni (að því tilskyldu að það hafi verið frjóvgað). annars erum við bara að tala um allt annað egg, sem auðvitað er alveg mögulegt, en það varð þá bara að annari hænu, ergo; eggið kom á undan hænunni.

jamm, segiði svo að hálftími í sturtunni sé tímasóun!

miðvikudagur, desember 13, 2006

tímanna tákn

þú ert orðinn gamall þegar þú:
10. ferð og verzlar þér föt í herrafataverslun birgis
09. gerir þér grein fyrir því að nýu buxurnar sem þú keyptir eru með stretch buxnastreng og þú hugsar; “nei sko, en sniðugt.”
08. horfir með athygli á umfjöllun kastljóssins um atvinnuleysi og atvinnuhorfur fólks “sem komið er um og yfir miðjan aldur.”
07. horfir ekki bara á fréttirnar heldur líka á kastljósið á rúv
06. finnst í alvöru að taka eigi upp zetuna aftur í orðum eins og bezt og verzlun.
05. spáir í hluti eins og lífeyrissjóðsréttindi og eftirlaun en þekkir samt engan 67 ára eða eldri.
04. færð bréf inn um lúguna hjá þér frá fólki sem þú hefur hvorki séð né heyrt í tugi ára að bjóða þér á 20 ára útskriftarafmæli “árgangsins okkar.”
03. hættir að hugsa um kynlíf 6.666 sinnum á dag.
02. ferð á reunion tónleika og þeir nálgast það að verða beztu tónleikar sem þú hefur nokkurn tíma farið á, ever!
01. semur 10 atriða lista fyrir bloggið þitt sem byrja á orðunum “Þú ert orðinn gamall þegar…” og spáir hvort þú fáir bónusstig fyrir að semja hann í vinnunni en ekki í frítímanum heima hjá þér.
0,5 dettur miklu fleiri hlutir í hug til að setja á þennan lista, eins og til dæmis; kaupir maxil natursalve í lyfju, því það virkar svo vel við særindum og/eða þrýstisárum frá tanngómum. borið beint á slímhúðina eða á gervitennurnar. er einnig gott á straxgóma (immedettanngóma) þar sem kremið er mjög græðandi. er er líka gott til að fróa munnsár, munnangur, sár í munnvikum, frunsu, herpessár, munnþurrk, og þurrar varir. virkar kælandi hreinsandi og mýkjandi. er því gott við þurrum höndum, sprungnum hælum, sveittum fótum, sýkingum, smá brunasárum, vörtum, skordýrabiti, naglabandasýkingu, bólum, nefstíflu, sveppasýkingu, og ertingu eftir rakstur.
0,25 fattar að þú ert alltaf sami bjáninn því þér finnst orðið "fróar", eins og það kemur fyrir í textanum hér að ofan, enn fyndið.

mánudagur, desember 11, 2006

já...


hann er flottur bingurinn, sérstaklega þegar snjóar.

þriðjudagur, desember 05, 2006

caught a fleeting glimpse

er textabrot úr pink floyd lagi, að mig minnir, en að öðrum kosti lýsir það hugsanaferli mínu með svo miklum ágætum að það nálgast að vera hrollvekjandi. hverfulleikinn er á stundum svo yfirþyrmandi að ég rétt næ að fá hugdettu að hugmynd áður en hún er horfin og gleymd og það eina sem stendur eftir í afmörkuðum afkimum hugans er hugmyndin um tilvist hugmyndarinnar. sem er ákaflega svekkjandi, amk fyrir mig.

kjarni málsins er því sá að þegar þú ert með iso 9000 vottaða teikningu af rafmagninu í hausnum á þér áttu ekki að fá skúla rafvirkja til að draga í og tengja.

án titils

sem er nákvæmlega það sem andlausir listamenn kalla verkin sín. öll mín verk eru því án titils, nema kannski stöku ritverk. annars hafa mínir traustustu lesendur eflaust tekið eftir því að ég hef ekki sett stakt prump á þessa síðu í langan tíma. útskýrist það helst af andlegu framtaksleysi og harðlífi hugans. en nú verður breyting á.

ekki svo að skilja að ég hafi etið stíflulosandi úr húsasmiðjunni og von sé á pípandi niðurgangi með tilheyrandi saurgerlaslettum upp um alla veggi heldur hafa ytri aðstæður breyst til batnaðar. hin andlega þrúgandi ógn sem að mér hefur staðið síðastliðna mánuði hefur að mestu verið fjarlægð og lífið virðist ætla að láta skína í tennur sínar öðru hvoru í áttina að mér á ný.

vér ógnin höfðum samið um uppgjör og ég gat því hætt að stressa mig á henni. uppgjörið fór svo fram um þessi síðustu mánaðarmót, nema hvað, ógnin stóð auðvitað ekki við sitt og nú þarf ég enn einu sinni eina ferðina enn að hafa samband við hana og krefjast leiðréttinga minna mála. sem ég hef og gert en vænti þó afar takmarkaðs árangurs.

því segi ég eins og skáldið; upp upp mín sál, og allt hennar hafurtask...