miðvikudagur, febrúar 21, 2007

hrmpf

og ég sem var alveg ákveðinn í því að fara í víking og finna sólina. ó nei! því verður víst ekki við komið. (hins vegar má geta þess í framhjáhlaupi að framkvæmdastjóri fyrirtækisins sem ég vinn hjá hefur eytt síðust tveim vikum í "gönguferð með tilgangi" eins og hann kallar það, á flórída.) ég, sveppurinn, sit hins vegar heima í myrkrinu.

ég þarf að læra að fljúga. nei, ekki flugvél heldur meira svona eins og kallinn í heroes, eða eins og hiro, japaninn í heroes, hann flýgur ekki, stjórnar bara tíma og rúmi. sem eins og fram hefur komið getur verið sérlega þægilegt, stundum.

við erum nokkrir í vinnunni sem ákváðum að kanna möguleikann á því að rotta okkur saman og fara á silverstone í júlí. jú jú, ekkert mál, verðmiðinn eru litlar kr. 170.000,- já, mér svelgdist líka á munnvatninu þegar ég heyrði þetta. hundraðogsjötjukall fyrir skitnar fimm nætur?!?! og það er ekki einu sinni sól á englandi! jú jú, voða gaman að fara á formúlunna en þetta er of dýrt fyrir mig, amk þetta árið.

nei, engin sólarlandaferð fyrir mig þennan veturinn. frekar en alla hina veturna. hingað til amk, vonandi næsta vetur. á meðan bíð ég eftir íslenzku sumri, sem aldrei kemur.

þung

lund? það þarf kannski ekki mikið til að æra óstöðugan en þegar svo berlega kemur í ljós að lífið sjálft er ekkert annað en síendurtekin röð sömu atvikanna þá þyngist á mér brúnin og lundin.

um hvað er ég eiginlega að tala? jú, hér tjáði ég mig síðast fyrir sex vikum síðan og það er hreinlega eins og tíminn hafi staðið í stað síðan. það eina markverða sem gerst hefur er að nú á ég nýjar skyrtur.

ég er enn saddur eftir átveislu gærdagsins. reyndar er ekki sprengidagur á hverjum degi og frómt frá sagt er ég ekki alltaf svona saddur en samt... það hefur svo sín áhrif til pirrunar og ergelsis að ég stunda það núna að fara út í bæ á hverjum degi eftir vinnu og svitna eins og hestur í hálftíma. af hverju hestur en ekki svín? ég hef aldrei séð sveitt svín en löðursveittan hest hef ég oft séð. þá yfirleitt með hnakkfar á bakinu og knapann með kambinn á lofti og einhvern veginn ímynda ég mér að hesti og knapa líði vel eftir sprettinn. mér líður líka sosum ágætlega eftir mína spretti en það er meira sálrænt en líkamlegt, amk er ég orðinn langeygur eftir árangri erfiðisins.

það er svo enn annað dæmi um tilgangsleysi tilverunnar að ég tel það til markverðra tíðinda að ég hefi eignast nýjar skyrtur...