sunnudagur, febrúar 27, 2005

áttu ekki konu...?

við vorum að þrífa bílana okkar, ég var hættur, ekki búinn, ætlaði að koma aftur næsta dag (sem ég og gerði). hann var enn að bóna sinn...

nei, svaraði ég, bara kött, sem auðvitað er ekki sami hluturinn.

samt á maður aldrei konu, þannig séð... við getum átt bíla, en ekki konur, og konur eiga ekki menn heldur ef út í það er farið... ekki frekar en ketti, milli míns og zophusar ríkir ákveðinn skilningur eða samkomulag; ég gef honum að borða og drekka (bara vatn), veiti honum húsaskjól og þríf kassann hans, og í staðinn fæ ég að klappa honum... hann sefur líka hjá mér en það er algjörlega platónískt

við eigum því aldrei hvort annað, og skiptir þá engu máli hvort við erum gift eða ekki, eignarhaldið er aldrei fullkomnað, skjalfest, vottað og þinglýst...

að eiga konu (eða mann fyrir þau ykkar sem það kjósið frekar... ) er því mjög svipað og eiga kött, ykkar á milli ríkir ákveðið samkomulag eða skilningur... skipst er á, á þar til gerðum jafnréttisgrundvelli, ást umhyggju og hlýju fyrir, vonandi, ást hlýju og umhyggju, þið borðið saman, horfið á sjónvarpið saman, þrífið íbúðina/húsið saman, sofið saman... ok, kötturinn tekur ekki mikinn þátt í viðhaldi heimilisins og vonandi eru meiri innileikar í rekkjubrögðum tvegga einstaklinga af gagnstæðu kyni og sömu tegund en milli mín og zophusar og tilfinningar ykkar í garðs hvors annars rista vonandi dýpra... en að því slepptu er þetta ákaflega keimlíkt...

og þó, hvað veit ég...?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home