jæja,
nú er komið haust og ég ekki innritaður í heimspekina, fattaði það nefnilega allt í einu að ég á frekar erfitt með að vera á tveimur stöðum samtímis. svo er foringinn svo helvíti nízkur að ég stórefast hreinlega um að hann sé tilbúinn til þess að borga mér fyrir það að fara í skólann. verst er að ég er ekki nógu ríkur til að gera 160 milljón króna starfslokasamning.
fylltist réttlátri reiði í morgun, fór sko í vr til að fá leiðréttingu minna mála og komst að því (sem ég auðvitað vissi fyrirfram) að foringinn gerir sitt allra allra bezta til að svindla á mér. og hann er nú yfirleitt helvíti góður í því sem hann tekur sér fyrir hendur, sérstaklega þegar kemur að halda fast í sitt (og annarra) í peningamálum!
einhverjum snillingi í vinnunni (lesist; helvs germaninn) datt það snjallræði í hug að stinga upp á því að vér auglýstum nýjan bíl hér á voru bloggi. no bloody motherfukcing way! fyrr skrái ég mig til ársdvalar í forgarði helvítis en að breyta því litla sem ég á sjálfur og ræð yfir í auglýsingamiðil fyrir foringjann, ekki svo að það lesi þetta nokkur einasti maður...
handboltahetjan er hætt, fór til ih að selja saab... hehehehehehe... ihihihihihihi... ahahahahahahahaha!!!

1 Comments:
konur eru líka menn svo ég verð að leiðrétta þig, það les þetta víst einhver maður! ;o) Og hvernig í ósköpunum datt einhverjum heilvita aðila í hug að nota bloggið ÞITT til að auglýsa bíla fyrir vinnuna!??! Það er nú barasta það fáránlegasta sem ég hef heyrt/lesið! Hrmpf!
Ég býst við að það komi haust eftir þetta haust í sambandi við heimspekina...
Skrifa ummæli
<< Home