i am not a stepford wife*
eða; ég er ekki stepfordísk eiginkona, í íslenskri þýðingu. nema hvað, ég tók mig til og skveraði af íbúðina í gær. og reyndar gott meira, tengdi heila uppþvottavél (jei!!!) hengdi upp gardínur, klappaði köttunum, já já báðum, setti í þvottavélina, osfrv... og ég er barasta alveg handónýtur í dag.
kannski hefur sú staðreynd að ég svaf í hámark 65 mínútur í nótt eitthvað með það að gera, hvur veit...? ég hef því verið eins og draugur upp úr öðrum draug í allan dag og alveg merkilegt hvað það hefur haft takmörkuð áhrif á vinnuna mína. helsta tilbreytingin sem ég fékk í dag var sú að fara í mjóddina og kaupa ýsu hjá dóra í hádegismatinn, og svo að labba út í sjoppu um þrjúleytið að kaupa mér sykusprengju svo ég stórslasaði mig ekki á skrifborðinu. ó, seldi sennilega líka einn bíl, kemur betur í ljós á morgun.
*ég vitna að sjálfögðu í frumgerðina, þessa svart/hvítu, ekki þessa með kallinum hennar sarah jessica parker og nicole kidman!

1 Comments:
Til hamingju með uppþvottavélina! ;o) About time! (lesist: guði sé lof!)
Og hvenær er svo afmælisboðið þitt? Ég bíð spennt (ásamt fleirum sem ég veit um) :o) Má ekki endurtaka sig afmælisboðssaga síðasta árs... ;o)
knús
Skrifa ummæli
<< Home