í dag er þetta...
ekki helst í fréttum; í gær var menningarnótt - þetta í sjálfu sér eru auðvitað öfugmæli, já eða réttara sagt, menningarnótt er öfugmæli. allt húllumhæið byrjar fyrir hádegi með skemmtiskokki í hljómskálagarðinum og endar með frækilegri flugeldasýningu, niðurtaldri (já eða jafnvel íniðurtaldri) af ölvuðum borgarstjóra, sem tapaði taktinum á miðri leið þrátt fyrir dyggilega aðstoð húðlemjara og blikkandi grilljón kerta kastara, löngu fyrir miðnætti þess sama dags...
skátarnir, með flugeldasýningu sinni með tilheyrandi fírverki sprengdu göt á skýin sem höfðu vakað yfir menningarnóttinni allan daginn og fram á kvöld. því fór sem fór og göturnar sem fyrr um daginn breyttust í göngustíga umhverfðust nú í lækjarfarvegi og gegnblautir reykvíkingar og nærsveitamenn flykktust heim til sín lögregluyfirvöldum til mikils léttis. kannski ekki hinum réttasta og sléttasta lögregluþjóni sem regnblautur stjórnaði umferð með myndarbrag í úrhellinu en það var kannski þó skárra en að þurfa hafa afskipti af sauðdrukknum pöpulnum langt fram eftir morgni...
það sem stóð hæðst upp úr allri flórunni er í boði var, að mínu mati þeas og í réttri tímaröð, voru; síðustu tónar fyrsta lags af enn óútkominni annari plötu benna hemm hemm. náði í skottið á honum í hljómskálagarði sirkuss og líkaði vel. tölti þaðan niðrí landsbankann við austurstræti og barði augum, meða annars, allt of stutt brot íslenska dansflokksins úr verkinu screensaver, og enn styttra brot úr verkinu við erum öll marlene dietrich for. ákvað þar og þá, og ekki í fyrsta sinn, að ég hreinlega bara verði að sjá fleiri verk id. bara spurning, sem svo oft áður, hvern ég get platað með mér á sýningar hans því að fara einn í bíó er nógu slæmt, að fara einn í leikhús eða á danssýningar er enn verra, það er bara svo anti social eitthvað... matarkyns stóð tagliolina með humarhölum vegamóta upp úr. innbyrti reyndar ekkert ofsalega fjölbreytt fæði þetta kvöld en það hefði samt engu breytt.
allt að því jafn blautur og kjöldreginn shanghaiaður messagutti á frönskum hákarlaveiðibát um eða fyrir þarsíðustu aldamót settist ég ásamt fríðu föruneyti inn á ölkrána, heilsu minnar vegna og til að ná úr mér mesta hrollnum hesthúsaði ég einu skoti af glærum drykk sem minnti helst á lakkrís og norska brjóstdropa, skolaði honum síðan niður með næstum náravolgum heineken þar sem ískaldur becks var ekki til... tók svo stuttu síðar þá skynsamlegu ákvörðun að hunskast bara heim til mín og pota mér ofan í rúm og undir sæng.
liggjandi í rúminu ölvaður menningunni sem ég hafði osmosisað þennan dag ákvað ég að læra á hljóðfæri - valið stendur milli trompets, saxófóns eða píanós... það versta er að þetta eru allt rándýr hljóðfæri og það síðasttalda þónokkuð fyrirferðarmikið, þungt og óþjált í meðförum. jú jú, auðvitað er hægt að finna ódýran trompet á ebay en einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni að það sé nú bara hálgert drasl, í mesta lagi lélegt prjál. verð líka að viðurkenna að hugmyndin um að ég sé sjálfur hluti af hljóðfærinu er ekki alveg að höfða til mín, svo hefur mig líka alltaf langað til að læra á píanó þannig að ég held það verði fyrir valinu, bara spurning um hvenær ég nái að hella mér út í námið... ætli ég þurfi ekki fyrst að verða mér út um sjálft píanóið og hér með er því komið á framfæri ósk eftir hræbillegri en samt sem áður vandaðri og tónfagurri slaghörpu fyrir mig til að misþyrma...

2 Comments:
varstu rulluf þegar þú skrifaðir þetta? Þú að læra á píanó? Veistu hvað það krefst mikillar þolinmæði? Og mikilla æfinga?! Jamms, hlýtur að hafa verið rulluf, trúi ekki öðru! ;)
jamm, eins og fram kom var ég rulluf (trough osmosis) af allri menningunni sem ég varð fyrir þenna dag...
Skrifa ummæli
<< Home