sunnudagur, ágúst 14, 2005

sunnudagar...

hrmpf... einhvernveginn finnst mér að sunnudagar ættu að vera frábærustu dagar í heimi! en eru þeir það? ónei, ekki aldeilis...

af hverju? það er stóra spurningin... jú kannski af því að þeir fara yfirleitt allir í einhverja tóma vitleysu, amk hjá mér, kannski af því að ég nenni yfirleitt ekki að gera neitt á laugardögum og það sem ég þarf að gera á laugardögum enda ég með að gera á sunnudögum...

ég meina, nennir þú að taka til, ryksjúga og þurrka af, þvo upp það sem þú hefur trassað að þvo upp, setja í þvottavélina svo þú eigir hrein föt næstu vinnuviku, og allt? á laugardegi? nei, ekki ég heldur! en gerir þú það? já ok, ekki ég... ég yfirleitt dreg það fram á sunnudag, og af því ég nenni því ekki á sunnudögum heldur þá dreg ég það yfirleitt fram á sunnudagskvöld og kemst aðeins yfir það nauðsynlegasta...

og helgin ónýt, búin og heil vika í þá næstu...

begin loop
repeat...
end loop?

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ok, það eru einhverjir helv#$&% fávitar að auglýsa á síðunni þinni, nýtt trend sem er gjörsamlega óþolandi (að mínu mati)!

Jamms, helgarnar segirðu ... skil þig svoooooooo vel. Þeas með að nenna ekki að eyða helgunum í að ryksjúga, moppa, þurrka af, þvo og almennt barasta taka til eftir vikuna. En ég verð að viðurkenna að ég er í hópnum sem, af tvennu illu, nennir frekar að gera svona á laugardegi heldur en sunnudegi því þá á maður allan sunnudaginn í frí og getur haft hann alveg eins og maður vill! :o) Og það er mjög góður kostur! Annars á maður auðvitað að gera þetta flest smám saman jafnt yfir alla vikuna (sem maður auðvitað gerir td hvað varðar uppvask og annað slíkt!) og ryksuga svo og þurrka af td á fimmtudagskvöldum. Tv hvort eð er skítt á fimmtudögum ;o) Og þá á maður alla helgina út af fyrir sig og það sem mann langar til að gera ... td slappa af með tærnar upp í loft eða fara út á land eða ...ja, eða neyðist til ... td þynnku eða annað álíka leiðinlegt. En allavegana maður á þá helgina :o)

Jæja, móðurlegum fyrirlestri er þá hér með lokið ;o)

knús

15 ágúst, 2005 11:50  
Blogger birkir said...

oj barasta auglýsingar, og ég sem hélt í eitt örstutt andartaks augnablik að ég ætti vini...

15 ágúst, 2005 12:59  
Anonymous Nafnlaus said...

Hehe, ég hélt það líka ;o) Komin 2 komment og það áður en ég fór eitthvað að blaðra ... og þar að auki bloggið nýkomið inn! En svo bregðast krosstré sem önnur tré ... eða eitthvað. ;o)

15 ágúst, 2005 13:21  

Skrifa ummæli

<< Home