þriðjudagur, maí 31, 2005

dresden í stofunni heima

þetta er eins og eftir loftárás hérna!!! - þetta var mamma vön að kalla upp fyrir sig, og í áttina að mér, þegar henni, iðulega oft á dag, ofbauð draslið í herberginu mínu í den tid...

velti því stundum fyrir mér hvaða kynni móðir mín, sem jú að vísu er fædd rétt fyrir innrásin í normandí, hafi haft af loftárásum. hún tók örugglega ekki þátt í spænsku borgarastyrjöldinni, enda ekki fædd þá og lítið um loftárásir... wwii bauð uppá heilan helling og mikið meira en það af loftárásum, en aftur er mamma of ung. svo leyfi ég mér að stórefast að móðir mín elskuleg hafi, sem betur fer, persónulega kynnst þeim ósköpum sem gengu á í kóreustríðinu eða víetnam af þeirri sáraeinföldu og jafnframt ófrávíkjanlegu staðreynd að ísland er barasta ekki í asíu...

falklandseyjastríðið, aftur, vitlausu megin á hnettinum og, aftur, lítið um loftárásir. loks þegar loftárásir urðu vinsælt sjónvarpsefni á vesturlöndum sem og annarsstaðar í heiminum í boði cnn var ég orðinn of gamall til að mamma héldi að svona motherly induced guilt trip virkaði á mig, hún einfaldlega vissi betur eftir margra ára árangurslausar tilraunir...

sá the pianist löngu eftir að hún kom út á video, og svo aftur í sjónvarpinu um daginn. eitt síðasta atriðið í þeirri mynd sýnir gettóið í varsjá, hvar varla stendur steinn yfir steini eftir óteljandi sprengjuárásir - var, eftir að myndinni lauk, litið um í stofunni heima hjá mér og náði loks að tengja, þetta er eins og eftir loftárás hérna...!!!

hefst þá vortiltektin ógurlega... bið samt um einn greiða fyrst - ef ekkert heyrist frá mér næstu tvær vikur, hringdu þá fyrir mig í rauða krossinn og biddu um rústabjörgunarsveit...

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég veit hvernig verkið lítur út svo já, skal hringja í rústabjörgunarsveit með hunda og allesammen til að bjarga þér og Zophus úr þessum ósköpum eftir ca 2ja vikna þögn ... jafnvel fyrr ef ég er í góðu skapi. ;o) Annars held ég að Zophus muni þetta lifa af hjálparlaust, kettir eru svo andskoti góðir í að finna leiðir út úr ótrúlegustu ógöngum (og sníkja mjólk í skál hjá nágrannanum í leiðinni).

Gangi þér vel að moka út! ;o)

knús, BK

01 júní, 2005 10:48  
Blogger anitahaf said...

þá er nú oft betra að sitja bara í tómri íbúð ;-)

01 júní, 2005 22:14  
Blogger birkir said...

mjamm... og svo er líka miklu auðveldara að þrífa tómar íbúðir...

01 júní, 2005 23:42  

Skrifa ummæli

<< Home