föstudagur, desember 22, 2006

en...?

um daginn tjáði ég mig, í hálfgerðu framhjáhlaupi, um þá upplifun mína að verzla mér buxur í ákveðinni herrafataverslun hér í bæ. það vill nefnilega svo skemmtilega til að þegar ég byrjaði í nýju vinnunni minni fylgdi því úttektarheimild í þessari áður að ýjaðri herrafataverslun. úttektarheimildin hljóðaði upp á tvennar buxur og tvennar skyrtur.

ég þóttist hafa himinn höndum tekið enda bráðvantaði mig bæði buxur og skyrtur. var og mikill hugur í mér þegar ég loksins mætti í búðina enda kominn til að gera stórinnkaup. það fyrsta sem ég rak augin í var þessi líka fína skyrta enda var henni þannig stillt upp að einungis blindur maður eða húsamús hefðu ekki tekið eftir henni. jæja, buxurnar keypti ég og var ekki lengi að því enda úrvalið mikið og gott. spurði svo um skyrtur og eftir að búðardaman vísaði mér á básinn "minn" (stærð nr.39) komst ég að því að það var ekki til ein einasta skyrta í allri búðinni sem mig langaði í. þóttist þó hafa unnið hálfan sigur og hélt hróðugur á braut.

í gær bar það svo til tíðinda að ég gerði jólatiltekt í slotinu. og viti menn, ég á nóg af buxum og átti til fyrir þennan ágæta verslunarleiðangur. kemst því ekki hjá þeirri hugsun að mér hefði verið nær, og svo auðveldlega getað, fjárfest í jakkafötum fyrir jólin.

fann samt engar skyrtur í tiltektinni...

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hmmm, var búin að setja inn comment hérna fyrir löngu ... birtist greinilega ekki :o( Hrmpf!

... eitthvað með að tiltækt gæti greinilega verið af hinu góða (eins og ég hef alveg pottþétt minnst á við þig áður). ;o)

29 janúar, 2007 16:47  

Skrifa ummæli

<< Home