Ó-feigur...?

Lítill en hávær, svartur og haugdrulluskítugur fresskettlingur, svona ca 3 - 3 1/2 mánaðar gamall fannst ofan á ylvolgri vél í Musso jeppa við Bílabúð Benna að Tangarhöfða 8-12 um miðjan dag í gær, 16. maí. Var ekki á því að láta ná sér en lét, sökum ungæðingsháttar, gabbast að lokum. Var kaldur, hrakinn, styggur og svangur en eftir góða kvöldmáltíð og enn betra bað kom í ljós að hann er hin mesta kelirófa sem heimtar sitt klapp, klór og kelerí refjalaust.
Hefur, amk tímabundið, verið valið gælunafnið Ófeigur og dvelur nú við gott atlæti í umsjá Zophusar nokkurs. Undir handleiðslu sér eldri og vitrari séntilmanns standa vonir til að Ófeigur braggist hið bráðasta meðan hann bíður þess að komast heim til sín.
Þess má geta að Ófeigur er ólarlaus og hvorki eyrna- né örmerktur, amk svo vitað sé. Fljótt á giskað, miðað við líkamlegt og andlegt ásigkomulag Ófeigs, hefur hann verið á vergangi í amk vikutíma og langar nú heim til sín aftur.

1 Comments:
Ófeigur greyið er svoddan krútt! Verst að eigendurnir (ja, fyrrum eigendur greinilega) er svo miklir (hmmm... hvernig á maður að orða þetta kurteisislega ...) bévítans hálfvitar að hafa hent honum út. Hrmpf, sumt fólk! :(
Skrifa ummæli
<< Home