mánudagur, apríl 10, 2006

og hvað svo?

ég meina, regnið lemur kofann utan og desibilafjöldinn innandyra er kominn langt upp fyrir heilsusamleg mörk. þarf reyndar ekki mikið til þar sem eftir mæni hússins er birtuígegnhleypandi (sko, ekki gegnsætt) bárujárnsplast sem bylur í á við tóma tunnu, sérstaklega þegar gefur yfir ískalt og stálhart stingandi ísregn.
inni í kofanum er svo lítið að gera nema hanga í tölvunni og spila mafíósatölvuleiki á netinu. reyndar ekki komist í það sjálfur en germaninn segir þetta bara tóma snilld. annars segir germaninn svo margt að ég er löngu hættur að hlusta á hann, segi bara já og kinka kolli hist og her. kannski er það bara óskhyggja í mér en þó finnst mér eins og aðeins hafi minnkað um málræpuna hjá germananum eftir að handboltaguttinn var ráðinn. í raun og veru held ég þó samt að hún hafi aukist til muna en dreifist einfaldlega víðar. skelfilegast finnst mér samt þegar ég er í miðju samtali við kúnnannn og allt í einu og fyrirvaralaust skellur á okkur málræpuflóðbylgja úr verstu átt. við sitjum svo eftir aurvotir og blanco með tóman spurnarsvipinn á smettinu. í fimm metra fjarlægð situr svo ingjaldsfífl með sólheimaglott og telur sig hafa bjargað deginum þegar hann í raun og veru rétt náði að klúðra sölunni. ég hef reyndar reist flóðvarnargarð úr skrifstofuhúsgögnum á milli okkar en þegar spýjan á upptök sín ofan við efri mörk flóðvarnargarðsins og lýtur ekki jafn sjálfsögðum grundvallarlögmálum eins og þyngdaraflinu er ekki margt hægt að gera. c'est la vie sagði maðurinn og eyddi restinni af deginum í óteljandi æfingar í tilgangsleysi...

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

vá! stuð hjá þér í vinnunni ...

24 apríl, 2006 17:28  

Skrifa ummæli

<< Home