mánudagur, febrúar 23, 2009

ef

ég dett í stofunni heima, og það heyrir það enginn, skyldi ég meiða mig?

miðvikudagur, júní 04, 2008

það rann

líka upp fyrir mér nýlega (núna rétt í þessu jafnvel, þar sem atburðir gærkvöldsins meltast í litla sæta heilabúinu mínu og eru um það bil núna að raða sér niður í skipulegar og settlegar raðir áður en þeir trítla svo upp í meðvitundina aftur) að ég get andskotann alla hluti, í bandi.

bandi? já sko, eins og alþjóð veit er ég allt að því víðáttu lofthræddur (ok, ekki allt að því). og í gærkvöldi tók ég mig til og kleif 12-ish metra háa klettasprungu einn og hjálparlaust. eitthvað sem ég hélt ég ætti aldrei eftir og myndi aldrei geta. kennir manni að efast ekki (svo mikið) um sjálfan sig.

hvað kemur bandið málinu við? jú ég hefði auðvitað ekki lyft fótum af jörðinni án þess að vera tryggilega tryggður (í bak og fyrir) í bandi því annars hefði ég örugglega dottið og stórslasað mig og þú myndir aldrei lesa um þessar svaðilfarir mínar á blogginu mínu. í mesta lagi lesa dánartilkynningu í blöðunum, kannski hefði ég komist í fréttir; "lofthræddur ræfill á vegum hjálparsveitar skáta í reykjavík stórslasaðist þegar hann hrapaði við klettaklifur í stardal í gærkvöldi."

en það sem ég vildi sagt hafa (held ég) var eitthvað á þá leið að maður getur ótrúlega hluti, hluti sem engan (í minni fjölskyldu) hefði órað fyrir að væru mögulegir, bara ef maður fílar sig temmilega öruggan og þarf ekki að hafa áhyggjur af því að slasa sig eða hrapa til bana. merkilegt alveg. svo er þetta líka ógsla gaman sko!

ég

hefði sennilega bara átt að verða rafvirki. rann upp fyrir mér rétt í þessu. þægileg innivinna, að mestu leiti. alltaf næg vinna, næg atvinnutækifæri, vel borgað. svo hefði ég góða afsökun fyrir því að eiga stóran pick-up, vinnubíllinn sko.

ó, ef ég væri tíu árum yngri... (lesist með shakespearískum tilþrifum).

fimmtudagur, mars 27, 2008

hvernig er

með þetta andskotans veður hérna á klakanum? þetta fer að verða eins og sífrerinn í síberíu! átti ekki að koma sumar strax eftir páska? er það ekki vaninn? smá páskahretur snýtt úr annari nösinni og svo bara sól og hiti? amk frostlaust?

drulluveður!

ég hef sosum hingað til sem hér eftir kunnað ágætlega við snjóinn sko, bjartur og upplífgandi. en á þessum árstíma á hann bara heima uppi á fjöllum. nokkrir skaflar í esjunni og svo hellingur á langjökli, oki og skjaldbreið (sem ég fór á um daginn, í þessari röð).

en frost, nei takk og oj bara!

ok, ég væri kannski minna pirraður út í þessa ónáttúru ef ég hefði ekki keypt mér hjól og langi núna út að hjóla en kommon, ég gæti hjólað allt árið ef ég ætti heima í london!

fimmtudagur, mars 06, 2008

ég var

rukkaður um nýja pósteringu hér á þessari annars vesælu bloggsíðu minni. segir mér að það sé ein manneskja þarna úti í alvörunni (versus þessari rafknúnu gerviveröld sem þetta blogg er) sem les þetta bull mitt. mikið afskaplega hlýtur henni (manneskjunni sko) samt að leiðast þetta hrafnaspark mitt þar sem ég hef ekki sett stakt orð hér inn síðan í ágúst og hún (manneskjan sjáðu til) rukkar mig fyrst núna.



annars ákvað ég það í gær að vinna vikingalottóið, það voru ekki nema 110 milljónir en það dugar mér svo sem enda alltaf verið sérlega lítillátur. átti leið í hagkaup og verzlaði mér þar eitt stykki lottómiða, meira að segja með jóker. var svo eilítið smeykur við að ég hefði ákveðið þetta of seint, einhver annar hefði verið á undan mér og hreppt vinninginn. var því heldur betur svekktur þegar ég komst að því áðan að vinningurinn gekk barasta ekki út, yrði fjórfaldur næst og þá 180 millur. ég get sosum alveg notað það líka sko, jafn vel deilt með mér ef út í það er farið.


ekki svo að skilja að ég sé svona fégráðugur. en ég slæ sosum ekki hendinni á móti reynslunni sem svona monníngum fylgir. búinn að prófa hitt.

föstudagur, ágúst 17, 2007

tek til

baka orð mín frá 21. febrúar á þessu ári þess efnis að aldrei komi sumar á íslandi. auðvitað kemur sumar á íslandi á hverju einasta ári, svona dagatalslega séð. reyndar, sökum afkáralegrar hefðar hver undan rifjum frómra manna fyrr á öldum er runnin, er enn haldið sé upp á sumardaginn fyrsta á miðjum vetri, helst í skafrenningi og stórhríð. finnst alltaf jafn spaugilegt að sjá saklausa skátadrengi og stúlkur hópum saman með fána að vopni forkalast á miðjum laugarvegi meðan dúðaðir öndvegismenn þjóðarinnar, aka atvinnupólítíkusar, horfa brosandi á, dúðaðir í sel og ref.

en í sumar kom sól, og jafnvel hiti, og ekki bara á egilsstöðum og akureyri. reyndar vildi svo skringilega til, alveg reyndar með ólíkindum, að bezta veðrið var sunn- og suðvestanlands í allt sumar. eins og kannski þar ekki að taka fram hér enda öllum ljóst...

samt vil ég meira sumar, já eða meira frí, en samt aðallega meira sumarfrí. því að þó ég hafi fengið (tekið) heilar þrjár vikur í frí þá liðu þær hjá og voru búnar áður en ég náði að snúa mér við og segja hani krummi hundur svín, hestur mús...

föstudagur, ágúst 03, 2007

jú toking tú mí...?

sagð'ann og horfði ógnandi á mig. ég leit í kringum mig og vonaði ég væri ekki einn því maðurinn var allt í senn stór, svartur, skítugur, illa lyktandi, berfættur og feitur.

ég hafði gengið út og og staðnæmst, eftir stutt labb, við kóksjálfsala. haldandi á klinkinu í lófanum gat ég ekki ákveðið hvort ég vildi kók eða mántein dú sem kostaði 89 cent, og kartöfluflögur með sýrðum rjóma eða salti og vinegar, dollartuttuguogfimm, og sagði því stundarhátt "helvítis!" til áherzluauka fyrir engan nema sjálfan mig.

stóri svarti skítugi og illa lyktandi berfætti feiti maðurinn nálgaðist hægt en örugglega, vaggandi í spikinu. ég starði á jörðina, leit síðan til himins, hóstaði, gelti og sló svo sjálfan mig utanundir, ákvað því næst að fá mér bæði kók og mántein dú og sleppa flögunum.

þegar ég snéri við sá ég í iljarnar á stóra svarta skítuga illa lyktandi berfætta feita manninnum þar sem hann kjagaði í burtu eins hratt eins og hann komst, sem, ef satt skal segja, var furðu hratt. minnti á sæljón á fengitíma.