föstudagur, febrúar 10, 2006

2002

ekki árið, númerið. auðvitað er 2002 númerið á árinu 2002, þannig lagað séð en það sem ég á við er símanúmerið 2002. eða öllu heldur og réttara sagt, símanúmerið mitt sem endar / endaði á 2002. var sem sagt með 5522002 sem er auðvitað barasta bezta símanúmer í heimi. svo setti ég það í pant af því ég fór til útlanda í tvö ár. svo reifst ég og skammaðist í símanum í heillangan tíma út af mjög svo ósanngjörnum reikningum. og svo þegar ég ætlaði að nota þetta símanúmer aftur voru þeir, asnarnir, auðvitað búnir að úthluta því til gleraugnaverslunar hér í bæ. þá voru góð ráð dýr því í millitíðinni hafði ég fengið mér gemsa og númerið á honum er 6592002. nú leita ég því logandi ljósi sem villuráfandi kolanámumaður (ég meina, sérðu þetta ekki fyrir þér ljóslifandi? grútskítugur (sko bókstaflega bara svartur) kolgrafari með hálfónýta týru á hausnum og ósandi olíulampa í hendi, leitandi) að númeri, sko góðu númeri sem endar á 2002 og er laust. betra það sé laust sko...

nema hvað ég hef sennilega eytt um það bil, ef ekki rúmlega, klukkutíma í símanum, talandi fram og tilbaka við sitt hvort símafyrirtækið til að fá númer, "mitt" númer. auðvitað fæ ég ekki 5522002 þar sem það er í notkun (helvítis...) en ég vonaðist til að fá kannski 5252002 eða 5282002 eða 5582002, fá svo líka nýtt gsm númer, eins og til dæmis 8252002 eða 8282002 eða 8582002. nema hvað helvítis beinið hann visa frændi er með 5252002 og hefur haft það lengi (og er sko ekkert á leiðinni að skila því (gat samt fengið 8252002)) þá vildi ég fá 5282002 og það hefði verið snilld, en þá hefði ég líka þurft að kaupa 5282000 og 5282099 og allt þar á milli en þar sem ég hef ákaflega lítið við 100 númer að gera (og er vafalaust ekki borgunarmaður fyrir svo stórum pakka ásamt idsn línu og símstöð) þá eiginlega var það barasta dauðadæmt frá fæðingu, ef ekki fyrr.

því eru góð ráð dýr, geri samt ráð fyrir að ég taki 5xx2002 (þar sem x er sama talan (gef heimasímann minn (verðandi) ekki upp hér)) og svo fæ ég 8xy2002 (þar sem x og y er ekki sama talan) sem gsm númer. svo verð ég fyrsti maðurinn til að fá 8xx2002 þegar það kemur til notkunar í kerfinu, hvenær það sosum verður... vííííííí ad infinitum et cetera osfrv...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home