mánudagur, nóvember 28, 2005

manninn brjála

þessi á trommunum sko, æji ég man ekkert hvað hann heitir, trommarar verða aldrei frægir, nema kannski þeir séu einhentir eða í prúðuleikurunum...

nema hvað, ég fór á tvenna tónleika í gær eins og ég hef áður minnst á. fór fyrst á jólatónleika módettukórs hallgrímskirkju, í hallgrímskirkju. fór í fyrra og var sérstaklega hrifinn af ísak ríkharðssyni sem þá steytti varla úr hnefa en söng eins og engill. í ár var hann orðinn aðeins stærri, en söng alveg jafn vel. svo er hann víst með eindæmum ofvirkur, er í söngnámi meðfram því að syngja hér og þar og allsstaðar, meira að segja í íslensku óperunni í tökin hert, (eða turn of the screw, eins og það ku víst heita á útlenska frummálinu) jafnframt því að læra á fiðlu og píanó, og guttinn er að ég held ekki orðinn tíu ára...!!!

þar fyrir utan var ég ekkert sérlega hrifinn en kannski það hafði eitthvað með að gera að ég var að drepast í bakinu og í miðju mígrenikasti, hvur veit?

nú eftir að hafa óvænt gerst bílstjóri (fram og til baka) fyrir strandaglópa ofan úr árbæ sem læstu lyklana sína inni í bílnum sínum, farið heim, skipt um föt, farið í 10-11 keypt þriggja daga gamla samloku og meððí, farið heim til hennar systur minnar, etið segða samloku ásamt meððí og brutt í mig 2 íbúkód pillur (sem í dag er sjaldséð munaðarvara), trítluðum við út í laugardalshöll og uppgvötuðum okkur til mikillar en tímabundinnar skelfingar að húsið opnaði kl 19 en ekki kl 20. við áttuðum okkur fljótt á því að við hefðum sennilega bara misst pínulítið af aminu sem reyndist svo rétt.

nú veit ég ekki alveg hverju er um að kenna en fraukurnar í amínu stóðu ekki alveg undir mínum væntingum. sennilega af því að ég hafði gert miklar væntingar til þeirra án þess í raun að vita hverju ég ætti von á, kannski var ég líka bara ekki að nenna að hlusta á þær þar sem ég var orðinn nett spenntur fyrir sigurrós. samt verð ég nú aðeins að minnast á sviðsframkomu þeirra og klæðnað sem var einkar kven- og huggulegur, kjólar og fínerí sem ég kann ekki að nefna. hljóðfærin voru og af ýmsum toga, allt frá hefðbundnum strengahljóðfærum yfir í hinar ýmsustu gerðir víbrófóna og xylophona, apple kjölturakka, mismikið fyllt rauðvínsglös og sög sem bæði var notuð sem strengja- og ásláttarhljóðfæri.

stúlkurnar þökkuðu svo pent fyrir sig eins og góðra stúlkna er vant og eftir að þær létu sig hverfa að sviðinu var hreinlega dregið fyrir það. að vísu með afar þunnu og frekar, en samt ekki alveg, gegnsæju tjaldi. bassadrunur miklar liðu svo yfir salinn og mannskapinn, öll fimm þúsundin sem þarna voru saman komin enda gjörsamlega stappað í höllinni, meðan fimar sviðshendur röðuðu hljóðfærum og fylgihlutum á sviðinu. eftir langa langa bið (voðalega eru mennirnir lengi að stilla hljóðfærin sín, eiga þeir ekki að vera farnir að kunna þetta?) steig svo sigurrós á svið ásamt fríðu föruneyti í formi fyrrnefndrar aminu og níu manna brass bandi.

ég ætla ekki einu sinni að gera heiðarlega tilraun til að lýsa tónleikunum sjálfum, orð hafa yfir höfuð aldrei hentað neitt sérlega vel til að lýsa tónlist, hvað þá tónlist sigurrósar, og þá allra síst svo mögnuðum tónleikum sem þessum. ég hef áður farið á tónleika með sigurrós, nánar tiltekið í the fillmore í san francisco árið 2001, þá kom amina líka fram með þeim sem og steindór andersen. eins og þeir tónleikar voru góðir (og jafnvel betri í minningunni) held ég, svona eftir á að hyggja, að tónleikarnir í gær hafi verið enn betri þó þeir væru öðruvísi. í fyrsta lagi er the fillmore mikið minni staður en höllin (enda seldist upp á þá tónleika á no time) og því miklu meiri nánd milli hljómsveitar og áhorfenda, svo var ég líka búinn að hlusta gat á ágætis byrjun og kunni því öll lögin þeirra utan af. en ég held þeir hafi samt sem áður lagt sig meira fram við þessa tónleika í höllinni heldur en tónleikana úti því eins og jónsi sagði þá voru þeir að koma úr evróputúr og ofsalega stressaðir fyrir þessa tónleika, hérna heima, stressaðir að spila fyrir íslendinga sem elska þá nánast alveg sama hvað þeir gera... en þetta voru auðvitað alveg snilldartónleikar og níu manna brassbandið ásamt skólahljómsveitinni skemmdi ekki fyrir...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home