miðvikudagur, nóvember 16, 2005

suð suðaustan þrír

athygli mín var nýlega vakin á því að ég sé nánast alveg hættur að blogga. það á sér eðlilegar skýringar. er orðin gamall og þegar fólk verður gamalt þá hættir það að virka. er því orðinn óvirkur bloggari. sem er að einhverju leyti svipað því að vera óvirkur alkahólisti, geri ég ráð fyrir. reyndar án nokkurar vissu því ég hef aldrei verið óvirkur alkahólisti, né virkur ef út í það er farið. en samlíkingin sem ég hafði í huga var sú að þó ég bloggi ekki mikið, eða hafi amk ekki bloggað mikið undanfarið þá er hugurinn alltaf öðru hvoru við efnið. og þó afrakstur erfiðisins sjáist ekki opinberlega þá hef ég byrjað nokkrum sinnum á alveg snilldar bloggi þó endirinn hafi verið... uhm... eh... endaslepptari...

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

aha, right, if you say so ... skal trúa þér bara fyrir þig (ehemm!! ræsk!)

;o)

24 nóvember, 2005 16:03  
Blogger birkir said...

nei nei, vertu ekkert að hafa fyrir því, ég gæti ómögulega farið fram á þvílíka fórn af þinni hálfu...

26 nóvember, 2005 18:58  

Skrifa ummæli

<< Home