mikið...
ofboðslega getur verið yfirþyrmandi leiðinlegt í vinnunni stundum! þeas þegar ekkert er að gera, og þá nennir maður heldur ekki að gera neitt, það er amk mín reynsla...
svo er mín vinna nú einu sinni ekki þannig að ég geti búið mér til eitthvað gæluverkefni, ég get ekki hannað eitthvað, búið til eitthvað sniðugt forrit, eða jafnvel framkallað nokkrar filmur, nei sör... svo get ég heldur ekki tekið með mér bók og lesið né heldur tekið með mér spólu eða dvd og haft bíó, þá yrði ég, hratt, vel og örugglega, leystur frá störfum...
einn ég sit og sauma
inni í stóru húsi
enginn kemur að sjá mig
ekki einu sinni litla músin, enda er ekki vitað um músagang í þessu húsi en það má vel vera að þær séu hérna því þetta er soldið stórt hús, en aftur á móti þá er ofboðslega lítið matarkyns fyrir þær hérna í húsinu, ég geri amk ekki ráð fyrir að þær nærist vel á dekkjum og felgum og gömlum vélarpörtum ofl þess háttar...
og nú fæ ég ekki lengur ókeypis skrípó í póstinum mínum, fékk heila 7 daga sem ókeypisprufutest, en núna vilja þeir að ég borgi fyrir þetta, bera fyrir sig starving artist syndróminu... ég hefði nú samt þorað að veðja höfðinu ásamt fleiru að jim davis, bill watterson ofl liðu ekki neitt sérlega stórkostlegan skort...

jæja, núna er klukkan orðin hádegi og þá get ég hlakkað til að láta mér leiðast seinni helming dagsins...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home