föstudagur, október 28, 2005

mál að linni

grey vesalings litla skinnið fréttablaðið er alveg í öngum sínum og veit varla hvað til bragðs skal taka. því brá svo ógurlega við innrás sýslumanns á sínar skriftstofur hérna um daginn að það hefur ekki náð að jafna sig enn þá þó svo almenningur sé nánast fyrir löngu búinn að gleyma öllu fjaðrafokinu.

fréttablaðið er svo eftir sig eftir einræðisherratilburði sýslumanns og jafnframt umhugað um málfrelsi sitt sem og annara íslenskra fjölmiðla og annarra íslendinga að það hefur séð sig tilneytt til að birta, á hverjum einasta degi, lítinn dálk á síðu 2 undir fyrirsögninni ritskoðun þar sem segir orðrétt:

"Sökum lögbanns sem sýslumaðurinn í Reykjavík setti á skrif Fréttablaðsins sem byggja á tölvupósti sem með einum eða öðrum hætti hefur haft viðkomu hjá Jónínu Benediktsdóttur, eru lesendur beðnir að athuga að blaðið getur þar með ekki skrifað um aðdraganda rannsóknar Baugsmálsins eins og það hefði kosið að gera. Sýslumaður hefur bannað Fréttablaðinu að endurbirta, í heild eða hluta, fyrri fréttir um sama mál. Þar sem fátt fréttnæmt var eftir óbirt í þeim gögnum sem hald var lagt á munu aðgerðir sýslumanns ekki skaða fréttaskrifin eins mikið og í fyrstu mætti ætla.
-ritstj."

eða í styttri útgáfu og á mannamáli, "æ æ, aumingja við. sýslumaðurinn í reykjavík er vondur við okkur (snökt), hann bannaði okkur að nota stolnu póstana frá jónínu (snökt). við getum barasta ekkert skrifað um baugsmálið af því að ljóti sýslumaðurinn er svo vondur við okkur, litla grey fréttablaðið (snökt). en það skiptir samt engu máli af því að við vorum búin að skrifa allt sem við gátum skrifað um baugsmálið, heheheheheh!!!"

er ég bara einn um það að finnast fréttablaðið skjóta sig í fótinn? nú hefði maður haldið að blaðamenn, og ritstjórar þá sérstaklega, væru nú amk sæmilega vel gefnir en það er ekki hægt að sjá á þessum skrifum ritstjórnar fréttablaðsins.

þegar ég var yngri átti ég það stundum til að láta svona, kvartra og kveina undan engu og ég man vel hvað var sagt við mig þá: "æ greyið mitt, hættu nú þessu væli...!"

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home