sunnudagur, janúar 01, 2006

af hverju

er edda björgvinsdóttir fengin til að leikstýra áramótaskaupinu? bara til að koma sinni fjölskyldu að? jú jú, björgvin franz er vísast til fínn leikari og ekki hef ég nokkurn skapaðan hlut á móti honum. en, það er til nokkuð sem heitir ofnotkun og ofnotkun er aldrei góð, hvað þá þegar hún fer saman við misnotkun á aðstöðu sinni!

en þjóðin, og ég þar á meðal, sat límd við sófana/stólana fyrir framan viðtækin og mas helvs sprengjuvargarnir sem hafa verið að linnulaust frá því á miðvikudaginn gerðu hlé á geðveikinni og horfðu á skaupið. svo virðist sem marque de sade sé kominn í starf innlendra dagskrárgerðarmanna á rúv því sjaldan, nei, aldrei hef ég pínst jafn mikið fyrir framan sjónvarpstækið og nú. og íslendingar, ég þar á meðal, virðast vera haldnir einhverjum masókistískum hvötum því við látum fara svona með okkur á næstum hverju ári.

horfði fyrr þetta kvöld óvart á stelpurnar á stöð 2. segi óvart því í fyrsta lagi vissi ég ekki að þær væru á dagskrá og í öðru lagi er ég ekki áskrifandi að stöð tvö enda var ég í foreldrahúsum og lá á meltunni yfir sjónvarpinu eftir síðustu átveisluna þetta árið. og ég hló mikið að stelpunum enda sérlega kómískir aðilar þar á ferð. þá á ég við stelpurnar sjálfar, handritshöfunda og svo auðvitað leikstjórann, maestro skara skrípó. af einhverjum dularfullum ástæðum virðist það nú einu sinni vera svo að af öllum þeim íslendingum sem gera út á það að vera fyndnir í sjónvarpi sé skari skrípó barasta eini maðurinn sem er í einhverju sambandi við húmorinn í þjóðinni sjálfri, sbr. svínasúpuna og stelpurnar.

því geri ég það að tillögu minni og skora á nýjan rúv stjóra, pál ólafsson sem getið hefur sér góðs orðs fyrir grínaktugheit, að gera strax bindandi samning við óskar um gerð 10 áramótaskaupa, með endurnýjunarákvæðum um 10 áramótaskaup í viðbót, svo forða megi þjóðinni frá öðrum eins menningarlegum hamförum og áttu sér stað í kvöld. ég vona svo bara eindregið að óskar þekkist tilboð útvarpsstjóra enda er kómísk velferð hátt í þrjúhundruð þúsund sálna að veði. nú ef svo vill til að erfiðlega gangi að fá hr. skrípó til verksins þrátt fyrir heiðvirð gylliboð um gull og græna skóga þá má alltaf ganga á fund forseta vors og/eða ríkisstjórnar sem geta þá í framhaldinu einfaldlega sett það í lög að skari skrípó og enginn annar en skari skrípó skuli leikstýra og hafa yfirumsjón með skrifun handrits að áramótaskaupinu. svo skal honum þakkað fyrir sitt framlag og hann sleginn til riddara hinnar íslensku fálkaorðu.

og ef einhver sjálfskipaður grínistatittur brýtur gegn lögum þessum og framleiðir svo mikið sem eitt áramótaskaup skulu hinir ábyrgu skrifaðir upp og steiktir á teini, eða einfaldlega bundnir við gamlan símastaur og skotnir á færi...

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

og nei nei, þú varst ekkert æstur! ;o) En sammála, þetta var versta skaup ever, hrein kvöl og pína! En bara svo þú vitir það þá er Skari Skrípó víst að hætta að leikstýra Stelpunum, en nýr leikstjóri ætlar að gera hvað hann getur til að halda sama húmornum í gangi (enda sömu handritshöfundar og allt það dæmi). Vonandi tekst það bara :o)

Knús

02 janúar, 2006 18:20  
Anonymous Nafnlaus said...

Og AF HVERJU ertu svona latur við að blogga? Þú gerir þér grein fyrir að það er kominn 7. febrúar og að síðasta blogg frá þér kom 1. janúar! Hrmpf!

07 febrúar, 2006 11:21  
Anonymous Nafnlaus said...

Og AF HVERJU ertu svona latur við að blogga? Þú gerir þér grein fyrir að það er kominn 7. febrúar og að síðasta blogg frá þér kom 1. janúar! Hrmpf!

07 febrúar, 2006 11:21  

Skrifa ummæli

<< Home