stolt siglir fleygið mitt
stórsjónum á... nema hvað, fleygið mitt er skínandi fallegur musso jeppi. skínandi fallegur af því að ég hef eytt ómældum tíma undanfarna viku, sem og miklum fjárhæðum, í að gera hann skínandi fallegan... nema hvað af því að ég vinn þar sem ég vinn þá eru fjárhæðirnar ekki svo óyfirstíganlegar, tíminn aftur á móti... vá maður...!
og er sem sagt að springa úr stolti. vissi til dæmis ekki fyrr en í gærkvöldi að það eru póleraðar felgur undir bílnum mínum. fyrir ykkur (eins og það sé múgur og margmenni sem les þetta) sem ekki vita þá eru póleraðar álfelgur mjög áþekkar krómuðum stálfelgum í útliti, voða sjæní og fallegar, amk þegar þær eru hreinar. nema hvað að felgurnar undir mínum bíl voru aðallega bara gráar og skítugar, með örlitlum keim af þvaggulu sem er til komið og reyndar mjög einkennandi fyrir felgur sem liggja í saltpækli hálft árið...
en nóg af felgum... lét líka massa bílinn fyrir mig, mössun í þessu tilfelli kemur lyftingum ekkert við heldur er lakkið slípað upp, drullan í ysta laginu slípuð af með þar til gerðum sleipi... öö... slípiefnum, þetta er svona svipað og þegar þú hreinsar dauðu húðfrumurnar með dauðhúðfrumuhreinsandi og endurvítamínofboðslegahressandiogviðlífgandimoisturizersjampósápu...
svo fékk ég kastara og á grind sem ég ætla vísu að breyta aðeins svo þetta stefnir bara í alveg rosalega flottan jeppa... svo bíð ég bara eftir snjónum...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home