miðvikudagur, október 05, 2005

andleg eyðimörk

ég, þú skilur...

stundum, við ákveðnar kringumstæður, þarf maður að tjá sig ofsalega mikið, hefur ofsalega mikið að segja, eða amk vill tjá sig um allt og ekkert... og svo stundum getur maður varla komið upp nokkru einasta orði, þeas ekki svona í eins manns hljóði... ekkert endilega svo að skilja að viðkomandi (ég eða jónánæstabæ) sé endilega að drepast úr þunglyndi, sjálfsvorkunn og volæði heldur er þessi þörf ekki endilega alltaf til staðar, þú skilur...

þó má auðvitað alltaf sjá tengsl milli ánægju- og hamingjuskalans annars vegar, og hins vegar magns orðflaums sem streymir fram við hvert og eitt minnsta tækifæri...

og stundum er maður bara þreyttur, rétt nær að skríða heim úr vinnunni, elda, parkera rassinum í sófan fyrir framan sjónvarpið og setja heilann í neutral í nokkra tíma... - þú skilur...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home