sunnudagur, júlí 17, 2005

lífið er...

ekki eins og í bíómynd, því miður og sem betur fer... ég meina, sumar myndir eru hryllingsmyndir og sumar myndir eru sætar og skemmtilegar og enda alltaf vel...

lífið er heldur ekkert alltaf eins og naked lunch...

en stundum mætti lífið vera aðeins líkara sumum bíómyndum, góðum bíómyndum sko, svo það sé alveg á hreinu. ég hef séð allt of margar lélegar bíómyndir og það myndi æra óstöðugan ef lífið sjálft færi að líkjast þeim

en, og eins og ég var að reyna að segja, þá mætti lífið sjálft stundum... þeas, mættu sum atriði í lífinu vera líkari sumum atriðum í sumum bíómyndum... stundum væri betra að hafa gott handrit, hafa lesið það yfir og æft nokkrum sinnum, fá nokkarar tökur, eða bara eins margar og til þarf til að ná atriðinu góðu...

hvað er ég eiginlega að röfla? ég eiginlega veit það ekki sjálfur, en það er aukaatriði...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home