sunnudagur, júlí 17, 2005

crap...!

já crap! segi, skrifa og meina crap! af hverju? jú, sko... sko... af því að... sko... crap!

einmitt! en... stundum langar þig og langar til að gera eitthvað, segja eitthvað við einhvern/einhverja af því þú heldur, amk vonar, að ef þú gætir einu sinni hert upp hugann, kastað af þér... þessu einhverju sem heldur aftur af þér, feimninni, hlédrægninni og skriðið út úr skelinni í smástund, öðlast örlítið meira sjálfstraust osfrv þá myndi það amk einhverntímann enda með því að bera árangur, þannig lagað séð...

en svo af því að þú heldur líka stundum að þessi einhver sem þú hefur áhuga á, hefur ekki snefil af áhuga á þér (ekkert illa meint sko, þetta er bara einn af þessum hlutum í lífinu) þá er ekki svo auðvelt að framkvæma áðurnefnda hluti... ekki svo að skilja að lífið eigi endilega að vera auðvelt...

en sko, stundum höldum við að sá/sú sem sem við höfum áhuga á hafi áhuga á okkur, eitthvað sem viðkomandi sagði og/eða gerði, eða sagði og/eða gerði ekki (samt meira eitthvað sem viðkomandi sagði og/eða gerði (aðgerðir tala hærra en skortur á aðgerðum)) fær okkur til að trúa því. en svo næst þegar við hittum hann/hana þá sýnir hann/hún okkur ekki minnsta vott af áhuga, segir varla meira en hæ og bæ, þá er frekar erfitt að trúa því að áhuginn sé gagnkvæmur...

og hvað skal þá til bragðs taka? kasta öryggisteppinu út í horn, skera á björgunarlínuna, klifra skjálfandi upp á stóra stökkbrettið og henda sér út í djúpu laugina? hvað ef, á miðri leið, krónísk lofthræðslan nær heljartökum á þér? þú stífnar upp, manst ekki í hvorn gúmmífótinn þú átt að stíga, einhvernveginn lekur fram af brettinu og nærð, úr 15 metra hæð, flottustu magalendingu sem sögur fara af, fyrr og síðar?

sko, ég meina, hvað myndir þú gera ef ég, allt í einu og nánast alveg fyrirvaralaust upp úr þurru eins og þruma úr heiðskíru lofti, hringdi í þig og eftir að hafa þakkað fyrir síðast, talað um veðrið (aðallega bölað eilífri rigningunni) spyrði þig síðan hvort þú vildir kíkja með mér á kaffihús, já sko héddna ég meina bara við tvö, sko...?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home