laugardagur, júlí 23, 2005

það versta við...

add er að þó athyglin og eftirtektarsemin séu á útopnu og taki eftir smæstu smáatriðum, svo lengi sem þau eru painstakingly obvious, þá eigum við, amk sum okkar, allt að því yfirgengilega erfitt með að taka eftir ekki svo painstakingly obvious smáatriðum sem þó eru hreint alls ekki nein smáatriði. það þarf því, amk í sumum tilfellum, að hinta að hlutunum, segja okkur þá, teikna fyrir okkur myndir af þeim, skrifa leiðbeiningar með þeim, og svo búa til kennslumyndband um þá með sér kapítula um aðferðarfræðina því, let's face it, hver les leiðbeiningar...?

samt eru sum okkar hreint ekki alveg viss um þessa hluti og þurfa því að spyrja einföldustu grundvallarspurninga eins og til dæmis; af hverju er himininn blár og á ég þá virkilega engann séns í þig...?

svar óskast sent, með ítarlegum leiðbeiningum og þrívíddarteikningum osfrv...

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Vill einhver svara grey drengnum?!

Efast um að spurningunni hafi verið beint til mín. Þeas ég veit að spurningin um af hverju himininn er blár kemur mér EKKERT við, hann veit betur en að spyrja mig að svoleiðis, og þetta með að eiga séns eða ekki ... hmmm, held (for the obvious reasons) að henni sé ekki heldur beint til mín! ;o) En grunar að ég viti samt meira en sumir aðrir lesendur (if there are any).

knús elsku besti brói minn, kannski færðu svar einn daginn :o)

02 ágúst, 2005 14:53  

Skrifa ummæli

<< Home