þriðjudagur, júlí 19, 2005

ég fer í fríið...

ég fer í fríið, ég fer í fríið... svo ég haldi í, og í heiðri, þá, og þeirri, venju að vitna í eldgömul og næstum löngu gleymd dægurlög!

talandi um venjur, ja svona frekar en heiður, enn þá amk, þá eru "allir" greinilega löngu hættir að kommenta á þetta líka unaðslega frábæra blog mitt, sem gefur þeim grun mínum að "allir" séu löngu hættir að lesa bloggið mitt, byr undir báða vængi upp í hæstu hæðir, og þykir mér það miður því eins og allir aðrir sannir listamenn nærist ég á fídbakki... (not too settle a hint, is it?)

ekki svo að skilja að hafi sjálfan mig grunaðan um að gefa fólki of óljósar vísbendingar, ef þetta sama fólk vill á annað borð, eða hitt, taka eftir þeim... ég meina, þegar ég vildi launahækkun þá fór ég bara fram á launahækkun, og fékk hana... og þegar ég vildi fara í innflutningsteiti þá bara droppaði ég hintum, hægri vinstri (já eða suðaði bara og suðaði eins og einhver myndi sjálfsagt kalla það) þangað til mér var boðið í innflutningsteiti...

en stundum getur maður ekki suðað, og stundum getur maður ekki verið of augljós... þannig lagað séð skilurðu, sjálfsagt er ég, frá einhverju sjónarhorni augljósari en andskotinn í matrósarfötum í sunnudagaskóla, sérstaklega ef þú stendur uppi í predikunarstólnum og mænir framan í djöfsa með sitt hæðnisglott. en ef þú situr á aftasta bekk og mænir upp í rjáfur og bíður þess eins að kórinn klári síðasta sálminn svo þú getir hlaupið út í góða veðrið þá náttla sérðu bara ekki rassgat, þó það sé rautt og með hala...

eh... hvað var ég að reyna segja...? ætli það skipti nokkru einasta máli? eníveis... já, talandi um gott veður þá fóru ég og sys í nettan sunnudagsbíltúr á þingvelli í tilefni þess að það er þriðjudagur... og allt fullt af útlendingum, frökkum, þjóðverjum, flæmingjum, skandinövum, ameríkönum fordæmandi hrossakjötsát og berandi það saman við gæludýraát, sem er auðvitað bara bull! nú á ég kött fyrir gæludýr (já eða hann mig) og ég verð bara að segja það að á meðan heill hestur getur fætt fjögurra manna fjölskyldu í fleiri daga þá er það kjöt sem kemur af ketti varla upp í aðra nösina á... ehm... ah... úúh... hérna sko... ketti... jú ok, sennilega væri það nú alveg nóg fyrir einn kött en varla meira en það, þar fyrir utan held ég að kattakjöt sé frekar ólystugt, og til að gæta réttlætis má það sama segja um hrossakjöt enda samkvæmt mínum nýustu upplýsingum fást um það bil réttar sex þúsund krónur íslenskar fyrir greyið í næsta sláturhúsi. annars er ég persónulega mikið hrifnari af folaldakjöti, þó ég sé með hálfgerðan móral yfir því að borða það... ég meina, maður sér þessi grey á vorin sprikklandi úti í haga rétt nokkurra daga gömul, gleðst yfir þessu litla kraftaverki sem lífið er og rétt fáeinum mánuðum seinna stendur maður eins og soltinn úlfur yfir grillinu, þrjár mínútur á fyrri hliðinn, tvær á þeirri seinni, hámar grey folaldið í sig, smjattar og strýkur á sér kviðinn.

það er ekki alltaf tekið út með tómri sældinni einni saman að vera efstur í fæðukeðjunni...

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Sorry mar fyrir að hafa ekki lesið síðustu daga af bloggi, en ég var í fríi og þar af leiðandi gjörsamlega laus við nettengdar tölvur (jamms, og ég kalla mig víst tölvunarfræðing með meiru!).

En ég verð að vera sammála með kanann og hrossakjötsát v. gæludýraát. Fáfróðir redneck ammmeríkanar mega bara eiga sínar skoðanir út af fyrir sig, alveg eins og við eigum okkar um þá. ;) Reyndar viðurkenni ég að þau voru nú bara að bölsótast yfir hrossaáti okkar sín á milli, helltu sér ekkert yfir okkur ... meira eins og við höfum óvart heyrt hvað þau voru að bölsótast um hross/gæludýr þegar þau æddu framhjá okkur og kommentuðu á að éta hundinn minn (sem ég varð nú ekkert svakalega hrifin af!). Hverjum í ósköpunum dytti í hug að éta elskulegan Cavalier með stóru augun sín og dillandi skottið ... auk þess sem hann er grindhoraður greyið. ;) Efast um að kjötið af honum OG kettinum mínum samanlagt (þá er ég að tala um Perlu, ekki Kalos) dygði til að metta sæmilega lystugan karlmann. En ætla ekki að sannreyna þá ágiskun mína!

Ég elska hesta og hestamennsku og allt sem því fylgir ... en mér finnst líka grilluð folaldapiparsteik alveg hreint svakalega góð! Jamms, smá þversögn í þessu býst ég við ... but hey, enginn er perfect! En by the way, það má sko ENGINN éta folaldið sem ég er að reyna að "framleiða" með því að láta Selju skemmta sér með stóðhestum langar sumarnætur í frjálslegri náttúrunni! Og þá meina ég ENGINN!!! ;)

knús

02 ágúst, 2005 14:48  
Blogger birkir said...

það er eitthvað bogið fyrir þetta, þú ert að pimpa merina þína... og borgar fyrir það!

02 ágúst, 2005 16:51  
Anonymous Nafnlaus said...

Hehe, og ætla að gera það sama fyrir köttinn!! Nema hvað ég ætla ekki að borga fyrir það, bara taka hana af pillunni og leyfa henni að skemmta sér (for the first and last time) ... svo verður allt rifið úr sambandi. ;o) En ríf ekkert úr sambandi í Selju, pabbi á hana, ég bara með hana í láni. ;o)

02 ágúst, 2005 18:05  

Skrifa ummæli

<< Home