laugardagur, mars 05, 2005

elskunnar logandi bál...

meira um það síðar...

for you single... (who am i kidding...? for us single) people out there;

þegar tilfinningar okkar (í garðs hvors annars eða allra hinna sem vita ekki af okkur) bera okkur ofurliði eru góð ráð dýr, og betri rándýr... en hvað um það, lífið heldur áfram og hjartað í brjósti okkar berst hetjulegum en samt sem áður vonlitlum og jafnvel fyrirfram töpuðum bardaga en sem sannir íslendingar gefumst vér eigi upp fyrr en í fulla hnefa og svo framvegis...

nema hvað, mínir hnefar gripu í tómt eins og venjulega...

en þið kannist við tilfinninguna, jafnvel þó þið viðurkennið það ekki... og fyrrnefndar tilfinningar hlutgerast og verða jafn áþreifanlegar og visareikningurinn um hver mánaðarmót, en á meðan kreditkortafyrirtækin senda sína reikninga óhrædd til tugþúsunda landsmanna þorum við ekki að opinbera tilfinningar okkar í garðs hvers annars af ótta við neikvæð viðbrögð. neikvæð viðbrögð hafa hins vegar aldrei stoppað visa frænda í því að fá sínu fram...

kannski ættum við að taka frændur okkar okkur til fyrirmyndar

og þó, einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni að fólk taki meira mark á visa og öllu því sem hann stendur fyrir en ástsjúkum einstaklingi á biðilsbuxum...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home