búhú!
þá hefur myrkrið tekið við. haustjafndægur var 23. september og núna er nóttin orðin lengri en dagurinn. þá getum við lagst í þunglyndi. og við getum flatmagað í vetrarþunglyndinu fram til (og með) 20. mars en þá er vorjafndægur. fyrir þá sem eru lítt hrifnir af legusárum eru til ýmsar medikasjónir, svo sem efexor, marplan, remeron eða bara prozac.
svo er hægt að gera eins og ég ætla að gera (ef: ég á pening, fæ frí í vinnunni minni, á pening... já og á pening) fara til útlandsins þar sem sólin skín. því ég er alveg viss um að þó hér snjói varla nema rétt svona til málamynda í allan vetur (sem er eiginlega verra því snjórinn er hvítur og af honum endurkastast sólarljósið) þá mun sólin ekki, frekar en í sumar, láta sjást neitt sérstaklega mikið í sig.
því hef ég ákveðið að byrja næsta sumar snemma og fara á sólarströnd, helst í janúar eða febrúar, og létta þar með lund mína og geð, já og ná kannski í smá lit líka. er að spá í morocco eða eitthvað álíka, amk einhvern stað þar sem sólin skín og sjórinn er heitur, sandurinn hreinn og dömurnar huggulegar. krít kemur líka alveg til greina sko...

2 Comments:
Spara spara og spara meira! Eina ráðið sem ég get gefið þér ;o) Og jú, Krít er yndislegur staður!
Hvernig væri nú að fara að skrifa aftur á þessa blessuðu síðu? :(
Skrifa ummæli
<< Home